Back to overview
26. janúar 2022
Opnað fyrir umsóknir um styrki til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða, sbr. aðgerð C.1 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Verður sérstök áhersla lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf, og verða verkefni sem hafa jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta fyrir hönd sóknaráætlanasvæða sótt um framlög sem í boði eru, en alls verða allt að 120 m. kr. veittar til sértækra verkefna svæðanna.
Úthlutun framlaga til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða byggir á reglum innviðaráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er reglunum ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun.
Umsónarfrestur er til miðnættis mánudaginn 28. febrúar 2022.
Nánari upplýsingar má finna hér.
Share article
More articles

9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Read more

8. september 2026
Ný tækifæri fyrir sunnlenska frumkvöðla: Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur í IceBAN
Read more

7. september 2026
SASS hafnar skattahækkun á baðlón: Ógnar 400 heilsársstörfum á Suðurlandi
Read more

4. september 2026
Opnað fyrir 50 milljóna króna úthlutun til vinnustaðaklasa
Read more