Back to overview
12. janúar 2015
Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina

Eyrarrósin verður veitt í ellefta sinn í mars næstkomandi. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð og það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi árið 2005.
Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.650.000 kr. Hin tvö hljóta 300.000 kr. og auk þess fá öll þrjú tilnefndu verkefnin flugmiða með Flugfélagi Íslands. Umsóknarfrestur er til miðnættis 8. febrúar 2015
Nánari upplýsingar má finna hér
More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more