Back to overview
18. maí 2015
Opið fyrir umsóknir í Endurmenntunarsjóð grunnskóla

Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið opnað fyrir umsóknir í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2015-2016 (1. ágúst 2015 - 31. júlí 2016).Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2015.
Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast eftirfarandi áherslusviðum:
- Náttúrugreinar
- Upplýsinga- og tæknimennt
Nánari upplýsingar á vef hér á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more