Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Austurvegi 56 – 800 Selfoss
Sími: 480-8200
Netfang: sass@sass.is
Kt. 480775-0159

Edit PageLogout
IS

Search results

Back to overview

18. mars 2026

Nýtt merki ART teymisins fangar kjarnann í starfinu

Nýtt merki ART teymisins fangar kjarnann í starfinu

ART teymi Suðurlands hefur tekið í notkun nýtt merki (lógó). Nýja merkið er stílhreint í útliti og ber með sér sterka og skýra skírskotun í þau gildi og þá hugmyndafræði sem teymið vinnur eftir.

Barnið er miðpunktur og fjölskyldan er heildin

Merkið sýnir uppdrátt af fjölskyldu þar sem barnið er miðpunktur. Þetta endurspeglar grunninn í starfi ART-teymisins, að alltaf er unnið út frá hegðun og líðan barnsins. Hringurinn utan um fjölskylduna táknar samheldnina og þá mikilvægu nálgun að öll fjölskyldan tekur þátt í vinnunni saman sem ein heild.

Hvað er ART?

Aðferðafræði ART byggir á þremur meginþáttum: félagsfærni, sjálfsstjórn og siðferði. Í gegnum þjálfunina er börnum kennt hvernig bregðast á við í ýmsum félagslegum aðstæðum um leið og unnið er markvisst með sjálfsstjórn. Þar læra þau að þekkja bæði eigin tilfinningar og annarra og tileinka sér aðferðir til að stjórna þeim. Jafnframt er lögð áhersla á siðferði, en þar eru gildi samfélagsins rædd og styrkt. Til þess er notast við klípusögur, umræður, röksemdafærslu og jákvæða styrkingu.

Markmið ART-teymisins er að styðja við jákvæða hegðun og bæta líðan og samskipti. Það er gert í nánu samstarfi við foreldra, fjölskyldur og skóla barnanna.

More articles

18. september 2026

Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót

Read more

17. september 2026

Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands

Read more

16. september 2026

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir

Read more

16. september 2026

SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar

Read more