Back to overview
26. október 2015
Nýr verkefnastjóri SASS á Höfn

Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir hefur verið ráðin ráðgjafi/verkefnastjóri SASS með starfsaðstöðu á Höfn í Hornafirði. Alls sóttu sex um starfið. Guðrún hefur meira eða minna unnið sjálfstætt að sínum eigin fyrirtækjum síðustu ár. Hún hefur sett á laggirnar og rekið nokkur fyrirtæki sem hafa náð góðum árangri. Nú síðast Heilshugar sem selur matvöru sem kallast Millimál og þar á undan Gastu sem selur m.a. roðklædda vasapela sem seldir hafa verið um borð í flugvélum Icelandair. Guðrún Ásdís hefur lokið grunnnámi í Byggingartæknifræði og hefur stundað mastersnám í Alþjóðaviðskiptum við Bifröst. Guðrún Ásdís er rétt rúmlega þrítug, gift, þriggja barna móðir og hún er uppalin á Hornafirði. Guðrún Ásdís tekur til starfa hjá SASS 2. nóvember nk.
More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more