IS

Back to overview

23. mars 2023

Nýr verkefnastjóri fjölmenningar hefur verið ráðin til Kötluseturs

Kötlusetur í Vík auglýsir stöðu verkefnastjóra fjölmenningar til eins árs.

Hugrún Sigurðardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri fjölmenningar hjá Kötlusetri til eins árs.

Hugrún er hjúkrunarfræðingur að mennt með víðtæka reynslu af félagsmálum og teymisvinnu. Í starfinu felst samvinna Mýrdalshrepps í tenglsum við fjölmenningarmál og stýring á samstarfsverkefni SASS og sveitarfélaganna Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps, Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornarfjarðar um sjálfbæra lýðfræðilega þróun á miðsvæði Suðuslands með sérstaka áherlsu á nýja íbúa svæðisins.

Verkefnið er samstarfsverkefni SASS og sveitarfélaganna fjögurra og hefur Byggðastofnun styrkt verkefnið. Verkefnisstjóra er ætlað að þróa og leiða samstarfsvettvang tengdan verkefninu og styðja sveitarfélögin við gerð á móttökuáætlun og/ eða stefnu fyrir nýja íbúa á svæðinu.

Nýr verkefnastjóri fjölmenningar hefur verið ráðin til Kötluseturs
Nýr verkefnastjóri fjölmenningar hefur verið ráðin til Kötluseturs