Back to overview
14. júní 2024
Ný stefna um Saman gegn sóun í bígerð – opinn fundur á Midgard Base Camp 19. júní


Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að fá innsýn í sjónarmið fólks, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um land allt.
Þann 19. júní kl. 10-12 verður Umhverfisstofnun með opinn fund á Midgard Base Camp þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og færi á að koma með tillögur að aðgerðum.
Frítt inn og léttar veitingar – fundinum verður einnig streymt.
Hér er viðburðurinn á Facebook
Skráning er nauðsynleg - sjá hér
HVAÐ ERU ÚRGANGSFORVARNIR?
- Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli? • Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur? • Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun? • Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?
Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun.
FYRIR HVER?
- Öll! • Starfsfólk fyrirtækja • Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana • Nemendur • Almenning
AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?
- Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri • Fræðsla um hringrásarhagkerfið • Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu • Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga • Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál
DAGSKRÁ
Á dagskrá eru erindi frá Saman gegn sóun, SASS, Flúðasveppum og Midgard. Eftir erindin tekur við samtal um aðgerðir.



