Back to overview
11. nóvember 2014
Námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum á Suðurlandi

Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir námskeiðum fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum á Suðurlandi. Fyrra námskeiðið verður haldið 19. nóvember að Austurvegi 56, 3.h., Selfossi og hið síðara 25. nóvember í Freysnesi í Öræfasveit. Námsskeiðsgjald er kr. 13.900.- innifalið er kennslurit og önur námsgögn sem verða afhent á staðnum, hádegisverður og kaffiveitingar.
Dagskrá: 09:30-10:00 Morgunhressing 10:00-10:30 Inngangur - Stjórnandi námskeiðsins (Svanfríður Jónasdóttir á Selfossi - Smári Geirsson í Freysnesi) 10:30-11:15 Til hvers er ég kjörinn í sveitarstjórn? - Um hlutverk sveitarstjórnarmanna og möguleika þeirra til að móta það - Stjórnandi 11:15-12:15 Stjórnkerfi sveitarfélaga og réttindi, skyldur og ábyrgð sveitarstjórnarmanna - Guðjón Bragason sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs á Selfossi - Tryggvi Þórhallsson lögfræðingur í Freysnesi 12:15-13:00 Matarhlé 13:00-13:45 Fjármál sveitarfélaga - Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs 13:45-14:45 Stjórntæki sveitarstjórnar - Stjórnandi og Gunnlaugur Stefnumótun (Ítarefni) Fjárhagsáætlun Kjarasamningar og mannauðsstefna Árangursstjórnun, nýsköpun og upplýsingatæknin (Ítarefni) 14:45-15:00 Kaffihlé 15:00-16:00 Málsmeðferð - Guðjón/Tryggvi 16:00-17:00 Samskipti og samstarf - Stjórnandi Meirihluti og minnihluti Starfsmenn sveitarfélagsins Milli sveitarfélaga Íbúar og frjáls félagasamtök Fjölmiðlar og samfélagsmiðlar



