Back to overview
11. desember 2013
Menntaverðlaun Suðurlands
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í sjötta sinn nú í vetur. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl. Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs. Jafnframt fylgir verðlaununum formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í janúar nk.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa allir þeir sem tengjast skóla- og menntunarstarfi með einhverjum hætti, sveitarfélög, skólanefndir, foreldrar, kennarar og starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf. Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur. Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 3.janúar nk.
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more