Back to overview
12. febrúar 2010
Menntaverðlaun og styrkur úr Vísinda-og rannsóknarsjóði
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir verðlaunin við hátíðlega athöfn í Fjölbrautaskóla Suðurlands í dag.
Þetta er í annað sinn sem Menntaverðlaunin eru afhent, en fyrir árið 2008 féllu þau í skaut Fræðslunets Suðurlands.
Við sömu athöfn verður veittur styrkur úr Vísinda-og rannsóknarsjóði Fræðslunets Suðurlands. Markmið Vísinda-og rannsóknarsjóðsins er að styrkja stúdenta, sem eru að vinna að lokaprófsverkefni, til rannsóknarstarfa á Suðurandi.
Gabriel N. Wetang´ula fékk styrkinn fyrir árið 2008 fyrir verkefnið "Hefur loftborin mengun frá jarðvarmavirkjunum áhrif á lífríki ferskvatns?" (doktorsverkefni við HÍ)
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more