Back to overview
17. mars 2025
Lokað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands

Þann 4. mars sl. rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbygginarsjóð Suðurlands. Alls bárust sjóðnum 122 umsóknir, skiptast umsóknir í eftirfarandi flokka, menningarverkefni og atvinnu- og nýsköpunarverkefni. Í flokk menningarverkefna bárust 91 umsóknir og 31 umsóknir í flokka atvinnu- og nýsköpunarverkefnum.
Allir umsækjendur munu fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga þegar niðurstöður liggja fyrir.
Reiknað er með því að úthlutun verði kynnt þann þann 8. apríl nk. Einnig má fylgjast með fréttum og tilkynningum af Uppbyggingasjóði Suðurlands á Facebook síðu sjóðsins https://www.facebook.com/uppbyggingarsjodursudurlands

Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more