Back to overview
6. október 2023
Leiðbeiningar um gerð þjónustustefnu sveitarfélags

6.10.2023
Alþingi samþykkti fyrir tveimur árum nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Ákvæðið kveður m.a. á um að sveitarstjórn skuli móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin þar á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Þróunarsvið Byggðastofnunar vann leiðbeiningar að beiðni innviðaráðuneytisins í samstarfi við sveitarfélagið Norðurþing og voru þær birtar 29. september síðastliðinn.
Markmið ákvæðisins er að gera stefnu sveitarfélaga gagnvart viðkvæmari byggðum sínum skýrari og taka um hana sérstaka umræðu.
Það er á ábyrgð sveitarstjórnar að móta heildarstefnu fyrir hverja byggð eða byggðarlag fyrir sig og gera grein fyrir ætluðu þjónustustigi vegna einstakra verkefna sem sveitarfélagið hyggst veita á viðkomandi svæðum, t.d. skólahald, ferðir skólabíla, opnunartímar sundlauga, rekstur félagsheimila svo dæmi séu tekin. Sveitarfélagið ákvarðar sjálft hvernig svæði verða skipt frekar upp með tilliti til þjónustustigs s.s. með því að flokka svæði eftir ákveðinni fjarlægð frá byggðakjarna eða miða við eldri skipan sveitarfélaga eða hreppa.
Sjá leiðbeiningarnar hér Leiðbeiningar um gerð þjónustustefnu sveitarfélags
Fréttin er tekin af vef Byggðastofnunar.
More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more