Back to overview
28. febrúar 2022
Landstólpinn: Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar

Landstólpinn samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðalun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.
Hér með er lýst eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2022. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.
Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:
- Stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna eða tiltekins svæðis
- Vakið athygli og aukið umfjöllun um ákveðið svæði og málefni innan landsbyggðanna
- Styrkt nærumhverfið, ýmist með aukinni samstöðu íbúa, atvinnutækifærum, aukinni afþreyingu, menningu, þjónustu, verðmætasköpun eða tækifærum af öðru tagi
- Aukið virkni íbúa og fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
- Stuðlað að jákvæðum áhrifum efnahagslegra, samfélagslegra og/eða umhverfislegra þátta
Tillögur sendist á netfangið: helga@byggdastofnun.is eða andri@byggdastofnun.is
Frestur til að koma tillögum til skila rennur út föstudaginn 31. mars 2022.
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more