Back to overview
21. desember 2016
Könnun um húsnæðismál á Suðurlandi


Mynd: Magnús Hlynur
Í haust réðst SASS í gerð könnunar á húsnæðismálum á Suðurlandi. Öll sveitarfélögin 15 á Suðurlandi svöruðu könnuninni og voru helstu niðurstöður eftirfarandi:
- Veruleg þörf virðist vera fyrir leiguhúsnæði alls staðar á Suðurlandi sem stafar m.a. af auknum ferðamannastraumi og hefur að öllum líkindum áhrif á framboð vinnuafls.
- Afstaða sveitarfélaga er orðin jákvæðari gagnvart aðkomu þeirra að byggingu íbúðarhúsnæðis og virðist sem sum sveitarfélögin sjái sér ekki annan kost en að koma að uppbyggingu með einum eða öðrum hætti.
- Fáar íbúðir eru í byggingu á svæðinu en nægilegt framboð er á tilbúnum byggingarlóðum víðast hvar á svæðinu.
- Íbúðum lánastofnanna virðist hafa fækkað til muna frá því að síðasta könnun var gerð.
- Vöntun er á starfsfólki á Suðurlandi og telja sveitarfélögin það stafa m.a. af húsnæðisskorti.
- Stjórnvöld þurfa að marka húsnæðisstefnu til framtíðar sem meðal annars þarf að fela í sér að brugðist verði við sértækum vanda landsbyggðarinnar. Markaðsbrestur er, sem lýsir sér í að ósamræmi er á byggingarkostnaði og markaðsvirðis húseigna.
More articles

24. nóvember 2026
Starfsfólk SASS sótti nýja þekkingu á norræna byggðaþróunarráðstefnu í Árósum
Read more

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Read more

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Read more

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Read more