Back to overview
22. febrúar 2019
Kallað er eftir tillögum vegna sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) kallar eftir hugmyndum vegna aðgerða á Byggðaáætlun 2018-2024 um sértæk verkefni sóknaráætlunarsvæða (C.1) á Suðurlandi.
Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem hafa varanleg og veruleg jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta fyrir hönd sóknaráætlanasvæða sótt um framlög sem í boði eru, en alls verða allt að 71,5 milljónum króna veittar til sértækra verkefna svæðanna.
Veitt verða framlög til verkefna á sóknaráætlunarsvæðum:
- sem nýtast einstökum svæðum eða byggðalögum innan landshlutans.
- sem nýtast landshlutanum í heild.
Við mat á umsóknum verður stuðst við eftirfarandi þætti:
- Íbúaþróun, aldurssamsetning og kynjahlutföll
- Samsetningu atvinnulífs og atvinnustig
- Meðaltekjur
- Önnur atriði sem skipta máli við mat á aðstæðum viðkomandi svæðis eða landshluta
Í nóvember s.l. fékk SASS úthlutað styrk að upphæð 13,5 milljónum króna úr sjóðnum vegna Aðgerðaráætlunar um sjálfbæra lýðfræðilega þróun miðsvæðis Suðurlands. Hér má lesa um þau fjölbreyttu verkefni sem hlutu styrk árið 2018.
Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á vef byggðastofnunar
Tillögur að verkefnum á Suðurlandi skal senda á Þórð Frey Sigurðsson sviðsstjóra þróunarsviðs á netfangið thordur@sass.is fyrir 7. mars n.k.
More articles

30. október 2026
Ársþing SASS ályktar: „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“
Read more

30. október 2026
Leikfélag Sólheima hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands 2026
Read more

21. október 2026
Ákall um samstarf – ekki bara samtal
Read more

14. október 2026
Rarik bætist í hóp bakhjarla Uppsprettu Suðurlands
Read more