Back to overview
22. ágúst 2014
Íslenski bærinn - opnun fyrstu sýningarinnar

30. ágúst nk. verður opnun fyrstu sýningarinnar, Íslenski bærinn - Fegurð og útsjónarsemi í húsakynnum Íslenska bæjarins að Austur Meðalholtum, Flóahreppi. Þessi sýning markar upphaf formlegrar starfsemi stofnunar sem verið hefur í uppbyggingu mörg undanfarin ár. Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp, sýningarstaður, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu, fræðimennsku, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar www.islenskibaerinn.is.
Opið hús verður milli kl. 14 og 17 laugardaginn 30. ágúst 2014. Boðið verður upp á léttar veitingar.


Share article
More articles

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more

9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Read more

8. september 2026
Ný tækifæri fyrir sunnlenska frumkvöðla: Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur í IceBAN
Read more