Back to overview
28. maí 2018
Íslenski Bærinn – Torfbærinn
Lýsing
Megininntak verkefnisins er hefðbundinn íslenskur byggingararfur.
Markmiðið var að hanna verkefni sem væri fræðandi en myndi um leið kristallast í áþreyfanlegum hlut. Þannnig að glíman viða að móta hlutinn myndi bæði glæða skilning á viðfangsefninu, þ.e. sögu og fjölbreyttum birtingarmyndum byggingararfsins, samtímis því að skerpa athyglisgáfu og skynjun.
Markhópur
Markhópurinn er eiginlega bæði grunnskólanemendur allt niður í 3-4 bekk og eldri nemendur og eftir atvikum almennir gestir safnsins og þátttakendur í námskeiðum í hleðslutækni, byggingarlist og myndlist.
Nemendur/þátttakendur munu móta hús/byggingu í leir sem eru innblásin af því myndefni sem er á sýningu Íslenska bæjarsins af torfbæjum og staðbundnum byggingum víðsvegar að úr heiminum. Hluturinn sem er mótaður verður mun síðan verða framlag nemandans til sjálfrar sýngarinnar á þar tilgerðri stórri sýningarhillu og mun þannig efla þá sýningu sem fyrir er í sýningarsölunum.
Afurð og ávinningur
Verkefnið glæðir skilning á hlutföllum og sérkennum bygginga, eðli byggingarefna og um leið tilfinningu fyrir (algildum) grunnformum. Jafnframt reynir verkefnið á beitingu sértækra verkfæra við mótun leirsins og síðan lokafrágang með því að mála húsið í hefbundnum litum með góðum litum og viðeigandi penslum. Allt efni og bestu verkfæri eru á staðnum. Með góðri einbeitingu ættu flestir að geta leyst verkefnið í tveimur vinnulotum, ca. 1.5-2 tímum. Með því að glíma við raunverulegt áþreifanlegt handverksverkefni er hugmyndin sú að nemendur og þátttakendur komist í nánari snertingu við byggingararfinn og sjái jafnframt í honum hliðstæður við eigin umhverfi og helst nýja og óvænta möguleika. Mikilvægt er að kennarar/leiðbeinendur sem stjórna verkefninu gefi sér góðan tíma í yfirferð og túlkun með nemendahópnum.
Öll verkfæri og umgjörð verkefnisins, hefur verið hönnuð og sérsmíðuð af Hannesi Lárussyni og Herborgu Eðvaldsdóttur kennara og leirlistakonu.
Íslenski bærinn
Verkefnastjóri: Hannes Lárusson Tölvupóstur: islenskibaerinn@islenskibaerinn.is Heimasíða: islenskibaerinn.is Simi: 694-8108 og 864-4484
https://youtu.be/RAXF0dk_9Dw
Hvert og eitt safn kynnti verkefni sín á sameiginlegri kynningu 31. maí 2018 og má finna öll kynningarmyndböndin hér.


More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more