Back to overview
15. febrúar 2016
Ísland-ljóstengt

Fjarskiptasjóður fékk 500 m.kr. fjárveitingu á fjárlögum 2016 til uppbyggingar ljósleiðarakerfa í dreifibýli utan markaðssvæða. Starfshópur vinnur nú að tillögum að framkvæmd fyrirhugaðs landsátaks, Ísland-ljóstengt. Samráðsfundur var haldinn með forsvarsmönnum landshlutasamtaka og fram komnar tillögur um útfærslu kynntar. Gert verður samkomulag við viðkomandi sveitarfélög um verkefnið og styrkinn. Styrkur einskorðast við upphafskostnað þ.e. hann nær ekki til rekstrarkostnaðar. Stjórnvöld vilja stuðla að því að innan fárra ára hafi 99,9% heimila og fyrirtækja á landinu aðgengi að 100 Mb/s þráðbundinni nettengingu.
Hér má lesa nánar um málefni samráðsfundarins
More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more