Back to overview
1. október 2007
Iðjuþjálfi á Suðurlandi
Undirritaður var samningur um samstarfsverkefni um starf iðjuþjálfa á Suðurlandi þann 27. september 2007. Samninginn undirrituðu Magnús Skúlason framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Laufey Jónsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Suðurlandi.
Samningurinn felur í sér samstarf þriggja stofnana um starf iðjuþjálfa á Suðurlandi. Heilbrigðisstofnun Suðurlands greiðir fyrir 60%, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Suðurlandi fyrir 20% og Skólaskrifstofa Suðurlands fyrir 20%. Mun iðjuþjálfi sjá um greiningu, ráðgjöf og meðferð barna á aldrinum eins til átján ára á Suðurlandi.
Sérfræðingar Skólaskrifstofu geta vísað málum til iðjuþjálfa, ásamt sérfræðingum heilsugæslu og teymis á vegum Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra.


More articles

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Read more

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Read more

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Read more

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Read more