Back to overview
22. apríl 2020
Íbúum í sveitum landsins boðið að taka þátt í könnun

Byggðastofnun hefur sett af stað könnun sem ber heitið Byggðafesta og búferlaflutningar: Sveitir og strjálbýli. Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum sveitasamfélaga og strjálbýlis og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum. Könnunin er ætluð öllum íbúum 18 ára og eldri í sveitum eða öðru strjálbýli á Íslandi. Með því er átt við íbúa á sveitabæjum og íbúðarhúsum utan þéttbýliskjarna, óháð því hvort búskapur er stundaður þar. Könnunin nær ekki til íbúa í þorpum eða litlum byggðakjörnum á stjálbýlum svæðum. Aðrar kannanir munu ná til íbúa í stórum og litlum þéttbýliskjörnum. Við hvetjum alla Sunnlendinga sem búa við þau skilyrði sem könnunin nær til að taka þátt í könnuninni á www.byggðir.is Þar má einnig nálgast nánari upplýsingar um könnunina. Mikilvægt er að rödd sveitasamfélaganna heyrist og því hefur hvert svar mikla þýðingu. Könnunina er einnig hægt að taka á ensku á www.byggðir.is/english
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more