Back to overview
29. júní 2010
Hagkvæmt að efla kragasjúkrahúsin
Á fundi sem haldinn var 15. júní sl. með fulltrúum landshlutasamtakanna á Suðurlandi, Suðurnesjum og Vesturlandi, sveitarfélaganna Árborgar, Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðar og Akraness og forsvarmanna kragasjúkranna á Selfossi, í Reykjanesbæ, Hafnarfirði og á og Akranesi, gerði Guðrún Bryndís Karlsdóttir verkfræðingur grein fyrir úttekt sinni á skýrslu um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu sem unnin var að tilhlutan Heilbrigðisráðneytisins sl. vetur. Samkvæmt úttekt Guðrúnar Bryndísar virðist sem talsverðra þversagna hafi gætt í skýrslunni ásamt því að ekki var tekið tillit til ýmissa þátta sem skipta miklu máli í rekstri sjúkrahúsanna og ekki síður fyrir íbúa sem að kragasjúkrahúsin þjóna. Af þessu leiðir að spurningar vakna vegna niðurstöðu skýrslunnar sem ganga í stuttu máli út á að ...
að færa verkefni frá Landspítalanum til kragasjúkrahúsanna. Mikilvægt er að þegar niðurskurður er framundan í rekstri heilbrigðisþjónustunnar verði engar ákvarðanir teknar um rekstur og starfsemi kragasjúkrahúsanna nema að vandlega yfirveguðu ráði þar sem tekið er fullt tillit til allra sjónarmiða.
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more