Back to overview
25. febrúar 2015
Frumkvöðladagur uppsveitanna 12. mars

Frumkvöðladagur uppsveitanna verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00 - 17:00 á Café Mika, Reykholti.
Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu og skipulagður af ferðamálaráði uppsveita Árnessýslu.
Markmiðið er að stuðla að nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra á svæðinu. Hugað verður að því hvernig er að hefja atvinnurekstur eða þróa. Stoðkerfið verður kynnt, styrkjamöguleikar og reynslusögum deilt.
Áhugasömum gefst tækifæri til að viðra hugmyndir sínar við ráðgjafa. Fjölbreytt erindi verða flutt á fundinum m.a. koma gestir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og atvinnuráðgjöf SASS.
Auk þess sem fulltrúar fyrirtækja í uppsveitum deila reynslusögum.
Nánari upplýsingar þegar nær dregur verða á www.sveitir.is
Óskað er eftir skráningu þátttakenda á netfang asborg@ismennt.is sími 898 1957

More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more