Back to overview
26. september 2006
Félag um samgöngubætur á Suðurlandsvegi stofnað
Í gær , 25. september, var undirritað samkomulag um stofnun Suðurlandsvegar ehf. Stofnendur félagsins eru Sjóvá, Sveitarfélagið Árborg, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Mjólkursamsalan og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um flýtingu Suðurlandsvegar og benda á nýja valkosti í því samhengi. Hlutafé félagsins er tíu milljónir króna. Á fundinum voru frétta- og blaðamönnum kynnt markmið félagsins nánar, en eitt meginmarkmið þess er að auka umferðaröryggi og fækka slysum, en fram kom að 52 hafa látist í umferðarslysum á Suðurlandsvegi frá árinu 1972. Þá kom einnig fram að umferð um veginn hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og sterkar vísbendingar um að sú þróun haldi áfram. Með sama áframhaldi má búast við að umferðin um veginn tvöfaldist á næstu tíu árum og verði á bilinu 15 - 20 þúsund bílar á dag að meðaltali. Til samnburðar fara að meðaltali um 10 þúsund bílar um Reykjanesbraut daglega.


More articles

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Read more

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more