Back to overview
19. febrúar 2015
Fanney aftur til starfa

Fanney Björg Sveinsdóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi SASS - Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á Hornafirði, er mætt aftur til starfa eftir fæðingarorlof. Fanney veitir margþætta ráðgjöf og handleiðslu til frumkvöðla, fyrirtækja, rekstraraðila og einstaklinga. Þjónustan felst m.a. í handleiðslu við gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana og styrkumsókna. Auk þess er hægt að kanna leiðir og möguleika til hagræðingar, þróunar eða vaxtar í rekstri. Þeir sem eru ennþá á hugmyndastiginu geta ráðgjöf og handleiðslu við að taka fyrstu skrefin. Fanney er með skrifstofu á frumkvöðlagangi Nýheima þar sem hún tekur vel á móti þér. Einnig má hafa samband í gegnum fanney@sudurland.is eða í síma 470-8086/898-0369.
Fyrirtæki, frumkvöðlar, rekstraraðilar og einstaklingar eru hvattir til að nýta sér þá þjónustu sem er í boði hjá SASS á Hornafirði.
Höfuðmarkmið SASS er að efla atvinnulíf á Suðurlandi og stuðla þannig að aukinni hagsæld á svæðinu með aðstoð við einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila í formi ráðgjafar og fjármagns.

Share article
More articles

9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Read more

8. september 2026
Ný tækifæri fyrir sunnlenska frumkvöðla: Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur í IceBAN
Read more

7. september 2026
SASS hafnar skattahækkun á baðlón: Ógnar 400 heilsársstörfum á Suðurlandi
Read more

4. september 2026
Opnað fyrir 50 milljóna króna úthlutun til vinnustaðaklasa
Read more