Back to overview
11. október 2007
6. fundur Menningarráðs
6. fundur Menningarráðs Suðurlands haldinn að Austurvegi 56, Selfossi, fimmtudaginn 11.10.2007 kl. 10:00
Mætt:
Jóna Sigurbjartsdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason, Íris Róbertsdóttir, Inga Lára Baldvinsdóttir
María Sigurðardóttir (varamaður) og Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð
Engin formleg dagskrá lá fyrir
Eftirfarandi mál voru rædd:
Dorothee Lubecki tók til starfa þann 1. október sl. Hún lýsti því sem hefur verið unnið síðan:
- Þátttöku á fundi safnamanna á Skógum, 2. 10. sl. (safnaklasi á vegum Vaxtarsamnings)
- Auglýsingu menningarstyrks 2007 í fjölmiðlum, umsóknarfrestur til 26.10.2007
- Viðveruáætlun útbúin og auglýst. Gert er ráð fyrir heimsókn og viðtalstíma í öllum sveitarfélögum áður en umsóknarfresturinn rennur út.
Umræður fóru fram um eftirfarandi mál:
- Umsóknir 2007 og úthlutunarferil
- Utanumhald og aðgengi nefndarmanna að umsóknunum
- Undirbúningur næsta fundar
- Áframhaldandi fjármögnun starfsins og hugsanlegir styrktaraðila
- Fjárhagsáætlun fyrir starfsemi menningarfulltrúa
- Stöðu menningarráðs gagnvart SASS (sjálfstæð eining eða ekki, heimasíða, kennitala)
Ákveðið var að DL útbúi yfirlit yfir allar umsóknir með stikkorðum og nauðsynlegum grunnupplýsingum. Umsóknir og fylgigögn verða send til nefndarmanna jafnt og þétt til að gera öllum kleift að vera vel undirbúin á næsta fundi.
Stefnt er að því að leggja yfirlit fram á aðalfundi SASS, en ekki er víst hvort ákvarðanir um úthlutun verða teknar fyrir þann tíma.
Samþykkt að halda næsta fund 30. október nk. kl. 13:00 á Selfossi.
Fundi slitið kl. 11:00
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more