fbpx

568. fundur stjórnar SASS 
Haldinn í fjarfundi 
24. mars 2021, kl. 13:00 – 15:00

Þátttakendur: Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður, Helgi Kjartansson, Lilja Einarsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Ari Björn Thorarensen, Arna Ír Gunnarsdóttir, Grétar Ingi Erlendsson og Einar Freyr Elínarson. Fundarmenn tengjast fundinum í gegnum fjarfundarhugbúnað. Undir dagskrárlið 2 tekur þátt Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri Þróunarsviðs SASS. Einnig tekur þátt Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS, sem jafnframt ritar fundargerð.

Formaður setur fundinn og býður fundarmenn velkomna.

1. Fundargerðir

Fundargerð 567. fundar staðfest en hún verður undirrituð síðar.

2. Sóknaráætlun Suðurlands

a) Formaður kynnir erindi sem SASS hefur borist frá fulltrúum Gullkistunnar, miðstöð sköpunar á Laugarvatni en það hljóðar svo: „Okkur langar að fá upplýsingar um hvort það sé yfirlýst stefna skv Sóknaráætlun Suðurlands að gefa ekki kost á því að sækja um stofn- og rekstrarstyrki í Uppbyggingarsjóðnum eins og gert er í öðrum landshlutum.“

Við úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands hefur þeirri línu verið fylgt að styrkja verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Um vel skilgreind verkefni er að ræða. Í samningi um Sóknaráætlun Suðurlands er tilgreint í grein 2.1. að hlutverk sjóðsins sé að styrkja verkefni sem falla að Sóknaráætlun landshlutans. Niðurstaða stjórnar SASS er að túlka þetta þröngt og því hefur sjóðurinn ekki verið að veita stofn- og rekstrarstyrki.

Framkvæmdastjóra falið að svara erindinu byggt á framangreindu.

b) Formaður kynnir skipulag og forsendur tillagna að fyrri úthutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands 2021. Stjórn samþykkir að fyrir næstu úthlutun verði úthlutunarreglur endurskoðaðar.

Alls bárust 166 umsóknir í sjóðinn 67 í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar og 99 í flokki menningarverkefna. Stjórn hefur miðað við að skipting fjármuna á milli menningar og atvinnu og nýsköpunar árið 2021 sé þannig að 20 m.kr. fari til hvors flokks í fyrri og seinni úthlutun.

Tillaga fagráðs atvinnu- og nýsköpunar leggur til að veita 21 af 67 verkefnum styrk eða um 31% umsókna. Samtals leggur ráðið til að úthluta 16 m.kr.

Grétar Ingi vék af fundi þar sem fyrirtæki sem hann tengist á umsókn. Þetta er gert til að tryggja málsmeðferð við úthlutunina og er til samræmis við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011.

Fagráð menningar leggur til að veita 53 af 99 verkefnum styrk eða rúmlega 53% umsókna. Samtals leggur ráðið til að úthluta tæplega 24 m.kr.

Þórður Freyr kynnir nánar vinnu fagráðanna og forsendum sem liggja til grundavallar framangreindum tillögum.

Stjórn samþykkir tillögu fagráðs atvinnuþróunar- og nýsköpunar óbreytta. Eftirtalin atvinnu-þróunar- og nýsköpunarverkefni hljóta því styrk:

Heiti verkefnis

 Styrkþegi

Fjárhæð

Fjölnýting jarðvarma til orkuvinnslu í dreifbýli

Raföld ehf.

1.500.000

Markaðssókn fyrir prjónavörur Kötlu inn á markaði

Prjónastofan Katla ehf.

1.400.000

Rannsóknir fyrir undirbúning fiskeldis í Viðlagafjöru

Sjálfbært fiskeldi í Eyjum ehf.

 1.250.000

Fæðubót með lifandi gerlum

Jorth ehf.

1.250.000

Tölvustýrt fjöðrunarkerfi

Bilbo ehf.

1.250.000

Afsláttur og þvottur á fiskþurrkunar grindum

 Vélaverkstæðið Þór ehf.

 1.200.000

Íslenski bærinn – Vettvangur þverfaglegrar menntunar

Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir

1.000.000

Þróunarverkefni á fræræktun á Íslandi

Skálpur slf.

 1.000.000

Markaðssetning Öræfa

Eyrún Halla Jónsdóttir

750.000

Að róta til bóta

Mercator ehf.

 650.000

Jökla- og fjallasetur – Viðskiptaáætlun, hönnun o.fl.

GlacierAdventure ehf.

 600.000

 Íslenskt ávaxtavín

 Húsið og Hafið ehf.

500.000

Málið í myndum

Halla Marinósdóttir

 500.000

 Algjört nammi

 Húsið og Hafið ehf.

500.000

Vöruþróun á Hrafntinnu búna til úr Líparíti frá Kötlu

Icelandic Lava Show ehf.

500.000

Strengjasmiðjan

Haukur Pálmason

500.000

Vínstofa Friðheima

 Friðheimar ehf.

 450.000

 Vöruþróun

Fjallsárlón ehf.

400.000

Náttúruafurð

Sigurborg Þ. Óskarsdóttir

300.000

Markaðssetning á Hlöðueldhúsinu í Þykkvabæ

 Loki 28 ehf.

300.000

Electric Vik Biking Explorer

 Eric Sol Canagueral van der Wal

200.000


Stjórn samþykkir verkefnatillögur fagráðs menningar en til að nálgast fjárhagsramma, sjá hér að ofan, lækki fjárhæð til hvers verkefnis um 10% og heildarstyrkur verði 20,871 m.kr. Eftirtalin menningarverkefni hljóta því styrk:

Heiti verkefnis

Styrkþegi

Fjárhæð

Sumartónleikar í Skálholti 2021

 Sumartónleikar Skálholtskirkju

900.000

Undirliggjandi minni

 Ólafur Sveinn Gíslason

900.000

Suðurlandstvíæringur – The Subject of CARE / Laboratorium

Sigrún Birgisdóttir

720.000

Þjóðsagnavefur – Suðurland

Kirkjubæjarstofa

720.000

NEST (Seinni hluti)

 Home Soil ehf.

720.000

VOLAÐA LAND (seinni hluti)

Anton Máni Svansson

675.000

 Konunglegir nýárstónleikar

Matarkráin ehf.

675.000

Pólskur kvikmyndaklúbbur á Höfn

 Menningarmiðstöð Hornafjarðar

675.000

Útilistaverk í Árnessýslu (rannsókn og ratleikur)

Listasafn Árnesinga

630.000

Hvað er svona merkilegt við Skálholt? – Menningardagar

 Skálholtsstaður

630.000

Fræðsluverkefni í tæknivinnu fyrir ungmenni

Hljómlistafélag Ölfuss

 540.000

Magn tímafars-Power of Passage

 Hannes Rúnar O Lárusson

 540.000

Myndlistarsýning : Hringfarar

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

540.000

Suðurlands Djazz

Sigurgeir Skafti Flosason

450.000

Sunnlensk kórtónlist í 150 ár

Ingibjörg Erlingsdóttir

450.000

Eureka // Gary Hill, Steina og Woody Vasulka

 Listasafn Árnesinga

450.000

Róska og kvenorkan

 Listasafn Árnesinga

450.000

Kynningartónleikar vegna Tónlistarbekkir

Inga Margrét Jónsdóttir

 405.000

Community land art project

Antoine Michel Brieuc Blondé

360.000

Brimrót menningarsumar

Pétur Már Guðmundsson

 360.000

Listin á vistinni

Agnes Hjaltalín Andradóttir

360.000

Listin að leika sér – leiklistarnámskeið við Ströndina

Hera Fjölnisdóttir

360.000

Menningarstarf að Kvoslæk

Rut Ingólfsdóttir

360.000

Missir- varðveisla tilfinninga – sumarsýning 2021

 Byggðasafn Árnesinga

360.000

Leikur í leir

Hafdís Brandsdóttir

360.000

 Náttúrutónar

 Sæbjörg Eva Hlynsdóttir

360.000

Myndlistarnámskeið í Íslenska bænum sumarið 2021

Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir

 360.000

Sumarnámskeið í teikningu 2021

Elín María Halldórsdóttir

360.000

Strengir á ferð um Suðurland

Katrín Birna Sigurðardóttir

360.000

 Listasmiðja við Ströndina

 Alda Rose Cartwright

360.000

Myndlistarsýning Erlu Þórarinsdóttur

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

360.000

Fortíðarsamtal – fyrir framtíðina

Náttúrustofa Suðausturlands ses.

 315.000

Bach í Skálholti 2021

Jón Bjarnason

315.000

Sagan gerð aðgengileg – höldum áfram

Héraðsskjalasafn Árnesinga

315.000

Ljósmyndunarnámskeið

Agnes Hjaltalín Andradóttir

270.000

Hafið kemst vel án okkar

Listasafn Árnesinga

270.000

Sagnalist á Suðurlandi

Njörður Sigurðsson

270.000

„Er þetta líka Rangæingur?“

Héraðsskjalasafn Árnesinga

270.000

 Akkúrat art

Michal Blazej Lenda

 270.000

Bjartir sunnudagar á Eyrarbakka

 Bakkastofa ehf.

270.000

Komdu í fjársjóðsleik!

Kötlusetur ses.

270.000

Myndlistarsýning KS

Auður Margrét C Mikaelsdóttir

225.000

Fjallkonan leikrit sýnt eldri borgurum Árborgar

 Hera Fjölnisdóttir

225.000

Vísband

Náttúrustofa Suðausturlands ses.

225.000

Jessica Jones og gímaldin á Fagurhólsmýri

Gísli Magnússon

225.000

Eflandi leiklist á ströndinni

Magnús Jóhannes Magnússon

225.000

Má bjóða þér sopa? – gjörningur og vídeóverk

Ósk Gunnlaugsdóttir

 225.000

Þögnin rofin ! Tónleikar.

Vestmannaeyjabær

225.000

Sagan og landið

Rangárþing eystra

180.000

Af hverju Ísland? Podcast

Klaudia Beata Wróbel

180.000

Barnastarf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

153.000

Eyrarbakkamyndir Sigurðar kaupmanns

Byggðasafn Árnesinga

135.000

Dansnámskeið á Höfn

Margrét Erla Maack

63.000


Núverandi aðstæður, af völdum Covid-19 veirunnar, valda því að erfitt verður að ganga frá samningum við styrkþega með hefðbundnum hætti. Stjórn heimilar framkvæmdastjóra að útfæra samningsgerðina með rafrænum hætti.

Grétar Ingi kom á fundinn að lokinni umfjöllun.

3. Önnur mál til kynningar og umræðu

a. Fundargerðir m.a. stjórna annarra landshlutasamtaka.

Lagðar fram til kynningar, fundargerðir 519. – 521. funda stjórnar SSH, fundargerðir 22. og 23. funda stjórnar SSNE, fundargerðir 765. – 766. funda stjórnar SSS, fundargerð 64. fundar stjórnar SSNV og fundargerð 895. fundar stjórnar sambandsins.

b. Tillaga að aðgerð í Byggðaáætlun

Formaður kynnir svohljóðandi bókun stjórnar SSNE um aðgerð í Byggðaáætlun: „Almennt verði gert ráð fyrir því að, að minnsta kosti, þriðjungur einstaklinga sem tilnefndir eru í stjórnir, ráð og starfshópa á vegum ríkisins og opinberra stofnanna í þeirra eigu séu búsettir utan höfuðborgarsvæðisins“.

Stjórn SASS tekur undir með stjórn SSNE og gerir framangreinda bókun þeirra að sinni.

c. Landsþing sambandsins

Formaður kynnir að boðuðu landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem halda átti 26. mars n.k. á Grand Hótel í Reykjavík hefur verið frestað til fram í maí n.k.

d. Garðyrkjuskólinn að Reykjum í Ölfusi

Ályktun stjórnar SASS vegna stöðu garðyrkjunáms við garðyrkjuskólann að Reykjum í Ölfusi.

Stjórn SASS leggur áherslu á að stjórnvöld tryggi framtíð starfsmenntanáms garðyrkjunnar á Íslandi að Reykjum í Ölfusi en ráðherra mennta- og menningarmála hefur þegar ákveðið að aðskilja hann frá LbHÍ og flytja námið til FSu. Við breytinguna verður að tryggja starfsmenntanáminu nauðsynlega fjármögnun og örugga starfsaðstöðu að Reykjum þar sem skólinn hefur verið rekinn hátt í hundrað ár enda verður ekki hægt að kenna garðyrkju nema með aðgangi að aðstöðu og svæði til ræktunar.

Í Garðyrkjuskólanum er fjölbreytt menntun í sex atvinnugreinum sem eru allar mikilvægar fyrir Suðurland en auk þess er áhersla á að efla iðn – og verknám í landinu.

Nám við skólann hefur verið aðgengilegt fyrir nemendur á öllum aldri og þarf að tryggja að svo verði áfram þrátt fyrir breytingarnar.

Mikilvægt er að viðhalda fagmennsku til að efla starfsemina og með því styðja við markmið stjórnvalda um að auka framleiðslu á íslensku grænmeti um 25% fyrir árið 2023, efla fæðuöryggi þjóðarinnar og sjálfbærni sem styður við aðgerðir í loftslagsmálum. Því er brýnt að tryggja það að áfram verði boðið upp á metnaðarfullt garðyrkjunám, jafnframt því sem unnið er að nýsköpun í greininni.

e. Verslun í dreifbýli

Stjórn SASS áréttar mikilvægi samkeppnislaga og að aðilar á markaði fylgi þeim.

Að gefnu tilefni áréttar stjórn SASS mikilvægi dagvöruverslana fyrir nærumhverfið en lokun þeirra getur haft umtalsverð neikvæð áhrif á byggðaþróun og getur rýrt samkeppnishæfni sveitarfélaga sem ákjósanlegs búsetukosts til framtíðar. Það er varla hægt að hugsa sér verri útkomu fyrir samkeppni um dagvöruverslun í Rangárvallasýslu en þá að loka einu matvörubúðinni í öðru kauptúninu.

Framkvæmdastjóra einnig falið að koma bókuninni á framfæri sem athugasemd við byggðaáætlun.

Næsti fundur stjórnar verður haldinn 7. maí n.k. kl. 13:00.

Fundi slitið kl. 15:30.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Helgi Kjartansson
Lilja Einarsdóttir
Einar Freyr Elínarson
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Ari Björn Thorarensen
Arna Ír Gunnarsdóttir
Grétar Ingi Erlendsson

568. fundur stj. SASS