Til baka í yfirlit
29. september 2015
Stefnumörkun Suðurlands 2016 - 2020

Á fundi verkefnastjórnar Sóknaráætlunar Suðurlands 23. september s.l. var ný stefnumörkun samþykkt fyrir landshlutann. Stefnumörkunin tekur til eftirfarandi málaflokka; a) menning, b) atvinnuþróun og nýsköpun og c) menntun, mannauður og lýðfræðileg þróun svæða. Um er að ræða stefnumarkandi plagg við gerð og mótun næstu sóknaráætlunar landshlutans. Stefnumörkunin er í senn leiðarvísir og viðmið við val á áhersluverkefnum, sem eiga að uppfylla þá framtíðarsýn, stefnur og markmið sem þar eru sett fram.
Stefnumörkunin byggir í megin atriðum á niðurstöðum samráðsvettvangs Sóknaráætlunar Suðurlands, sem var afrakstur fundar sem haldinn var 16. júní s.l. Einnig byggir stefnumörkunin á stefnum sem settar voru fram í hópavinnu við mótun Sóknaráætlunar Suðurlands 2013 og á niðurstöðum hópavinnu fulltrúa á ársþingi SASS í október 2014.
Nú þegar stefnumörkunin liggur fyrir verður kallað eftir tillögum úr samfélaginu að áhersluverkefnum sem falla að stefnumörkuninni. Opnað verður fyrir innsendar tillögur frá almenningi, stofnunum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öllum þeim sem vilja vekja athygli á mögulegum aðgerðum sem fallið geta að stefnumörkuninni. Hvort sem um er að ræða hugmyndir að verkefnum eða fullmótaðar verkefnatillögur. Verður það fyrirkomulag kynnt frekar á næstu misserum. Þórður Freyr Sigurðsson, verkefnisstjóri Sóknaráætlunar veitir frekari upplýsingar.
Sjá hér Stefnumörkun Suðurlands 2016 - 2020
Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar