fbpx

Verkefnastjórn Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fjallaði um tillögur fagráðs nýsköpunar og fagráðs menningar um úthlutun styrkveitinga til verkefna úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, í síðari úthlutun ársins. Alls bárust sjóðnum 98 umsóknir að þessu sinni, þar af 36 nýsköpunarverkefni og 62 menningarverkefni.

Niðurstaða verkefnastjórnar er að veita 47 menningarverkefnum styrki að fjárhæð 21.700.000, kr. og 24 nýsköpunarverkefnum að fjárhæð 14.920.000, kr. Samtals er því 71 verkefni veittur styrkur í síðari úthlutun ársins að fjárhæð 36.620.000, kr.

Hæstu styrkina hlutu Júlíus Magnús Pálsson, 2 mkr. til verkefnisins „Þróun á EC Storage lausnamengi“ í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna og Oddafélagið, 1,5 mkr. til verkefnisins „Fornleifaskóli unga fólksins í Odda á Rangárvöllum“ í flokki menningarverkefna.

Eftirfarandi menningarverkefni hlutu styrk:

  • Fornleifaskóli unga fólksins í Odda á Rangárvöllum,  Oddafélagið, 1.500.000 kr.
  • Alþjóðlegt menningarstarf í nærsamfélaginu,  Gullkistan, miðstöð sköpunar, 1.000.000 kr.
  • Strandminjasafn á Hnausum, Kirkjubæjarstofa, 1.000.000 kr.
  • Blús- og rokkhátíð Hornafjarðar – markaðssókn á nýja markaði, Blús- og rokkklúbbur Hornafjarðar / Hafdís Hafsteinsdóttir, 800.000 kr.
  • Syngjandi Stúlkur, Unglingakór Selfosskirkju stjórnandi: Edit Anna Molnár, 800.000 kr.
  • Vefurinn eldsveitir.is – sögur og myndir úr Skaftárhreppi, Lilja Magnúsdóttir, 750.000 kr.
  • Gangtegundir íslenska hestsins – tréskurður, Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, 700.000 kr.
  • ELDHEIMAR – Hugmynd verður að safni, Jón Karl Helgason, 700.000 kr.
  • Ásjóna Kirkjubæjarklausturs – LandArt, Skaftárhreppur – Menningarmálanefnd, 700.000 kr.
  • Myndspor sögulegar ljósmyndir úr Skaftárhreppi, Fótspor, félag um sögu og minjar í Skaftárhreppi, 700.000 kr.
  • Við hafnlausaströnd – 100 ára afmælissýning Skaftfellings, Kötlusetur ses, 700.000 kr.
  • Barrokkvöld í Skálholti og Selfosskirkju, Jón Bjarnason, 700.000 kr.
  • Samtal-Vinnuheiti, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, 600.000 kr.
  • Málþing og sýning – menningarverðmæti fortíðar, Kvenfélag Selfoss/ Sigríður Emilsdóttir, 500.000 kr.
  • Heimildarþáttur um smölun á Skeiðarársandi, Þorsteinn Roy Jóhannsson, 500.000 kr.
  • Hver er þetta? Samstarfsfundir um greiningu á ljósmyndum, Héraðsskjalasafn Árnesinga, 500.000 kr.
  • Norðurljós – Ævintýri og þjóðsögur (multimedia show), Patrycja Krystyna Makowska, 500.000 kr.
  • Lifandi tónlist í skógi, Ásmundur Þórir Ólafsson, 500.000 kr.
  • Útihöggmyndasýning í Ásgarði – Goð og gyðjur, Erlendur F. Magnússon, 450.000 kr.
  • Námskeið í Bragganum í Birtingaholti árið 2018, Erna Elínbjörg Skúladóttir, 400.000 kr.
  • Lundapysjur í Vestmannaeyjabæ II, Margrét Lilja Magnúsdóttir, 400.000 kr.
  • Bach í þremur kirkjum, Rut Ingólfsdóttir, 400.000 kr.
  • Sælugaukur, María Sól Ingólfsdóttir, 400.000 kr.
  • Hugverk í heimabyggð – Að koma sköpun á framfæri, Hugverk í heimabyggð, 375.000 kr.
  • Söngstarf eldri borgar í Uppsveitum Árnessýslu, Söngsveitin Tvennir tímar, 355.000 kr.
  • Heimilda/kynningarmynd um leirmótun „Rakú – frá mótun til muna“, Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði, 350.000 kr.
  • Söngur og leikur í 70 ár, Leikfélag Hveragerðis, 350.000 kr.
  • Blessað barnalán – Leikfélag Ölfuss, Leikfélag Ölfuss, 350.000 kr.
  • Bjartmar – Söngleikur, Leikfélag Vestmannaeyja, 350.000 kr.
  • Klaufar og kóngsdætur, Leikfélag Vestmannaeyja, 350.000 kr.
  • Iðubrúin í sextíu ár, Jakob Narfi Hjaltason, 300.000 kr.
  • Menningarheimar mætast – Grísk menningarhátíð í Eyjum, Safnahús Vestmannaeyja og Eldheimar, 300.000 kr.
  • Heimasíða og gagnaöflun fyrir Gamla bæinn í Múlakoti í Fljótshlíð, Sjálfseignarstofnunin Gamli bærinn í Múlakoti, 300.000 kr.
  • Sögusetur Selfoss, Már Ingólfur Másson, 300.000 kr.
  • Markaðssetning steina- og ljósmyndasafns, Jóna Benný Kristjánsdóttir, 300.000 kr.
  • Emil í Kattholti, leiksýning, Leikfélag Austur Eyfellinga, 280.000 kr.
  • Tilfinningar í litum, Batasetur Suðurlands, 270.000 kr.
  • Menningardagskrá 1. des., Listasafn Árnesinga, 260.000 kr.
  • Ljóðasetur Hveragerðis – Ljóðið er líf. Lífið er ljóðrænt., Sigurður Blöndal, 250.000 kr.
  • Minjaverndardagur í Skaftárhreppi, Kirkjubæjarstofa, 250.000 kr.
  • Karlakór Hveragerðis hleypir heimdraganum, Rögnvaldur Pálmason, 210.000 kr.
  • Jóladagskrá Byggðasafns Árnesinga, Byggðasafn Árnesinga, 200.000 kr.
  • Laugarás – þorpið í skóginum, Páll M. Skúlason, 200.000 kr.
  • Tónverk innblásin af verkum og ævi Svavars Guðnasonar listmálara, Sigurður Páll Árnason, 200.000 kr.
  • Barnastarf Svavarssafns, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, 150.000 kr.
  • Afmælistónleikar Svavars Guðnasonar, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, 150.000 kr.
  • Vísnasafn Hafliða Kristbjörnssonar, Finnur Hafliðason, 100.000 kr.

Eftirfarandi nýsköpunarverkefni hlutu styrk:

  • Þróun á EC Storage lausnamengi, Júlíus Magnús Pálsson, 2.000.000 kr.
  • Útsýnissiglingar frá Vík í Mýrdal – þróun rekstrarmódels, Reynir Ragnarsson, 1.000.000 kr.
  • Skyrgerðin- Þróun afurða úr Skyri og mysu ,Skyrgerðin/Skyr Guesthouse ehf, 1.000.000 kr.
  • Íslenskur leir brenndur úti í salt keramik brennsluofni, Gallery Flói, 1.000.000 kr.
  • Sjálfvirkur fiskþurrkunarklefi, Langa ehf., 850.000 kr.
  • Sacred Globe, Sacred Iceland ehf., 750.000 kr.
  • Ride With Locals – markaðssetning, Ride With Locals ehf., 700.000 kr.
  • Gæludýranammi úr fiskroði – Framhaldsverkefni, Langa ehf., 700.000 kr.
  • Skræður – Þurrkað hrossakjöt, Ársæll Markússon, 700.000 kr.
  • Sveitagarðurinn, Sigrún Jóna Jónsdóttir, 650.000 kr.
  • Ölverk brugghús – vöruþróun og markaðsmál, Laufey Sif Lárusdóttir, 500.000 kr.
  • The Cave People – markaðssetning, Sólstaðir ehf, 500.000 kr.
  • Kerta- og sápuframleiðsla, Violette Meyssonnier, 500.000 kr.
  • Markaðssókn, Suður Súkkulaði ehf, 500.000 kr.
  • Umhverfisstjórnunarkerfi fyrir sveitarfélög og fyrirtæki – Þarfagreining, Elísabet Björney Lárusdóttir, 500.000 kr.
  • Sjálfbært Suðurland – Kennslubókardæmi, Herdís Friðriksdóttir, 500.000 kr.
  • Veiðisafnið – Markaðsmál og þróun, Veiðisafnið, 500.000 kr.
  • Markaðssetning giftingarhringa eftir sögu Önnu frá Stóru-Borg, Friður og frumkraftar, 420.000 kr.
  • Vöruþróun með samvinnu og samstarfi við erlend brugghús, The Brothers Brewery, 400.000 kr.
  • Orkuleikfimi Þóru Sifjar, Þóra Sif Sigurðardóttir, 300.000 kr.
  • DC 3 Tours – kynningarefni og markaðssetning, Einar Freyr Elínarson, 300.000 kr.
  • Þorpið, Vigdís Sigurðardóttir, 250.000 kr.
  • Fjallhalla Adventurers, Erla Þórdís Traustadóttir, 200.000 kr.
  • Markaðssetning handverks, Hixti ehf., 200.000 kr.

 

Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri þróunarsviðs SASS