Til baka í yfirlit
6. desember 2019
Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir Eyrarrósina 2020.

Eyrarrósin er viðurkenning veitt framúrskarandi menningarverkefnum sem þegar hafa fest sig í sessi utan höfuðborgarsvæðisins.
Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 7. janúar 2020.
Eyrarrósin er viðurkenning veitt framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík hafa staðið saman að verðlaununum frá upphafi, eða frá árinu 2005.
Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofnunar, Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina ásamt veglegum peningaverðlaunum. Hin tvö tilnefndu verkin hljóta einnig peningaverðlaun.
Verndari Eyrarrósarinnar er Eliza Reid, forsetafrú.
Umsóknarfrestur vegna Eyrarrósarinnar 2020 er til miðnættis 7. janúar 2020.
Fleiri fréttir

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar

3. júlí 2026
Pistill framkvæmdastjóra: Fræin farin að kíkja upp úr moldinni
Lesa nánar