Til baka í yfirlit
6. september 2018
Umhverfis- og auðlindamálin í brennidepli á samráðsfundum í Vík og á Flúðum í gær

Í gær voru haldnir tveir af sjö samráðsfundum SASS á Suðurlandi til undirbúnings umhverfis- og auðlindastefnu fyrir landshlutann. Fyrri fundurinn fór fram í Vík og sá seinni á Flúðum.
Fundirnir tókust vel og sköpuðust góðar umræður um brýn mál sem leysa þarf á sviði umhverfis- og auðlindamála. Staðirnir tveir eiga ýmislegt sameiginlegt, en einnig komu fram ýmis viðfangsefni sem komu á óvart og verður fróðlegt að sjá hvernig endanleg útkoma verður. Næsti fundur verður á Hvolsvelli þann 11. september klukkan 16.00 og þann 12. september verða fundir í Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri.
Næstu fundir:
- Hvolsvelli, 11. september, kl. 16:00 -18:00. Félagsheimilinu Hvoli - kaffiveitingar.
- Vestmannaeyjum, 12. september, kl. 11:30 - 13:30. Þekkingarsetri Vestmannaeyja - súpufundur.
- Kirkjubæjarklaustri, 12. september, kl. 20:00 - 22:00. Félagsheimilið Kirkjuhvoll - kaffiveitingar.
Við hvetjum kjörna fulltrúa, íbúa og aðra hagsmunaraðila til að taka þátt í að móta umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland. Skráning fer fram hér.





Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar