Til baka í yfirlit
4. júní 2014
Langflestir á móti sameiningu í Hrunamannahreppi

Niðurstaða úr skoðanakönnun um sameiningu sveitarfélaga í Árnessýslu við Hrunamannahrepp, sem fór fram samhliða sveitarstjórnarkosningunum 31. maí liggja nú fyrir. Já, við einhverskonar sameiningu sögðu 142 en nei sögðu 224. Auðir seðlar voru 19 og ógildir 7. Já sögðu 97 við fyrsta valkosti en það var sameining uppsveita Árnessýslu (Hrunamannahreppur, Skeiða og Gnúpverjahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes og Grafningshreppur). já sögðu 26 við sameiningu uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps, já sögðu 2 við sameiningu uppsveita Árnessýslu, Flóahrepps, Hveragerðis og Sveitarfélagsins Ölfus og já sögðu 17 við sameiningu allra sveitarfélaga í Árnessýslu
Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar