Til baka í yfirlit
13. október 2014
Heimasíða Skóla-og velferðarþjónustu Árnesþings

Heimasíða Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er nú komin í gagnið. Á heimasíðunni má annars vegar velja upplýsingar um skólaþjónustu og hins vegar um velferðarþjónustuna. Á forsíðunni eru einnig upplýsingar um Skólaþjónustu- og velferðarnefnd, samninga, nefnd oddvita og sveitarstjóra og fundargerðir.
Á síðu skólaþjónustunnar eru upplýsingar um þjónustuna, eyðublöð s.s. tilvísanir og gátlista, upplýsingar um starfsmenn og þá leik- og grunnskóla sem skólaþjónustan sinnir. Þar eru einnig sameiginleg markmið skóla- og skólaþjónustu.
Heimasíðan á að vera lifandi og skemmtileg, þar verða settar inn allar upplýsingar um fundi og námskeið og næstu viðburði.
Ef þið hafið fréttir úr ykkar sveitarfélagi varðandi skólamál sem þið viljið koma á framfæri, sendið okkur þá endilega póst og við setjum frétt inn á heimsíðuna.
Slóðin inn á heimasíðuna er www.arnesthing.is








Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar