Til baka í yfirlit
21. janúar 2016
Eyrarrósarlistinn 2016

Birt hafa verið nöfn þeirra tíu verkefna sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Verkefnin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg og koma alls staðar að af landinu. Þann 2. febrúar næstkomandi verður tilkynnt hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.
Eyrarrósarlistinn 2016:
Act Alone
Að - þáttaröð N4
Barokksmiðja Hólastiftis
Eldheimar
Ferskir vindar
Northern Wave
Reitir
Rúllandi snjóbolti
Sauðfjársetur á Ströndum
Verksmiðjan á Hjalteyri
Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn um miðjan febrúar næstkomandi í Frystiklefanum að Rifi.
Sjá nánar hér um verkefnin á Eyrarrósarlistanum
Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar