Starfsmannabreytingar hjá SASS
Nú í september urðu breytingar á skrifstofu SASS. Bóel Sigurgeirsdóttir bókari sem starfað hefur á skrifstofunni undanfarin 7 ár hættir þar sem hún er að hefja háskólanám. Við starfi hennar tekur Ragnheiður Óskarsdóttir sem um árabil hefur starfað á skrifstofu Alpan á Eyrarbakka. Um leið og við bjóðum Ragnheiði velkomna ... Lesa meira
Nýafstaðið ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið 7. og 8. september sl. á Hótel Örk í Hveragerði. Þingið sóttu um 100 manns, þar af 53 kjörnir fulltrúar. Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar. Þingið samþykkti ályktanir um ymis mál, sem hægt er að kynna sér nánar hér ... Lesa meira
Aðalfundur SASS 7. og 8. september 2006 Efni vegna Aðalfundar SASS
Eins og fram hefur komið áður verður ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga haldið á Hótel Örk í Hveragerði dagana 7. og 8. september nk. Á þinginu verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Á þinginu verða einnig haldin erindi um ýmis mál sem varða sveitarfélögin ... Lesa meira
Dagskrá ársþings
Eins og fram hefur komið áður verður ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga haldið á Hótel Örk í Hveragerði dagana 7. og 8. september nk. Á þinginu verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Á þinginu verða einnig haldin erindi um ýmis mál sem varða sveitarfélögin ... Lesa meira
Miklar breytingar í sveitarstjórnum á Suðurlandi
Nú hafa nýkjörnar sveitarstjórnir á Suðurlandi formlega tekið við völdum. Miklar breytingar hafa orðið, sveitarstjórnum hefur fækkað úr 16 í 14 með tilkomu hins nýja Flóahrepps og sveitarstjórnarmönnum hefur fækkað um 10 og eru þeir nú 88 talsins. Verulegar mannabreytingar urðu í sveitarstjórnunum, af 88 sveitarstjórnarmönnum eru 59 nýir eða ... Lesa meira
Skýrsla Verkefnisstjórnar um Vaxtarsamning Suðurlands
18. maí sl. var kynnt á Hótel Selfossi skýrsla Verkefnisstjórnar um Vaxtarsamning Suðurlands með sérstöku tilliti til Vestmannaeyja og Vestur Skaftafellssýslu og hvaða kostir komi helst til greina við að treysta vöxt og samkeppnishæfni svæðisins. Í skýrslunni kemur m.a. fram að það er niðurstaða Verkefnisstjórnar að Suðurland eigi sér mikla ... Lesa meira
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í haust
Á síðasta stjórnarfundi SASS var samþykkt að halda ársþing samtakanna dagana 7. og 8. september nk. í Hveragerði. Samkvæmt nýjum samþykktum sem afgreiddar voru á nýafstöðnum aukafundum byggðasamlaganna verða á ársþinginu haldnir aðalfundir Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlandsog Sorpstöðvar Suðurlands auk aðalfundar SASS ... Lesa meira
Einkaframkvæmd á veginum á milli Selfoss og Reykjavíkur?
Á fundi stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem haldinn var í gær 4. maí, komu hugmyndir Sjóvár –Almennra um framkvæmdir við Suðurlandsvegá milli Selfoss og Reykjavíkur til umfjöllunar. Eftirfarandi ályktun varsamþykkt samhljóða: ,,Stjórn SASS fagnar fram komnum hugmyndum Sjóvár-Almennra um einkaframkvæmdáfjögurra akreina upplýstum vegi á milli Selfoss og Reykjavíkur og hvetur ... Lesa meira
Þriðju hæðinni verði bætt við
Á síðasta stjórnarfundi SASS, 15. mars sl., kom viðbygging Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi til umræðu. Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða: ,Stjórn SASS leggur höfuðáherslu á nauðsyn þess að bæta þriðju hæð við nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi til að leysa þann brýna vanda sem er til staðar í hjúkrunarmálum aldraðra ... Lesa meira