Dagskrá Humarhátíðar á  Höfn  26. – 29. júní 2014

Dagskrá Humarhátíðar á Höfn 26. – 29. júní 2014

Humarhátíðin á Höfn í Hornafirði fer fram um næstu helgi, dagana 26. -29. júní. Dagskráin er viðamikil og má sjá hana í heild sinni hér að neðan. Hér er dagskrá Humarhátíðarinnar ... Lesa meira
Grunnskólum á Suðurlandi fækkar

Grunnskólum á Suðurlandi fækkar

Grunnskólum á Suðurlandi hefur fækkað um 16 á ellefu árum skv. Hagstofu Íslands. Samfelld fækkun nemenda hefur verið frá árinu 2003, þá voru nemendur 4.137. Árið 2012 var nemendafjöldi kominn í 3.599. Næstmesta fækkun nemenda var á milli áranna 2008 og 2009, 112 sem er 2,85% og mesta fækkun á ... Lesa meira
Bæjarráð á Hornafirði eingöngu skipað konum

Bæjarráð á Hornafirði eingöngu skipað konum

Á bæjarstjórnarfundi í Sveitarfélaginu Hornafirði 18. júní var Björn Ingi Jónsson kosin nýr bæjarstjóri sveitarfélagsins. Björn Ingi er oddviti Sjálfstæðisflokksins sem er í meirihlutasamstarfi við 3. Framboðið, hann hefur seti í bæjarstjórn Hornafjarðar í 8 ár. Á fundinum var kosið í nefndir og ráð í bæjarráði sem er skipað þrem ... Lesa meira
Úthlutun styrkja Menningarráðs Suðurlands 2014

Úthlutun styrkja Menningarráðs Suðurlands 2014

Úthlutun verkefnastyrkja til eflingar menningarlífs á Suðurlandi fer fram  í Listasafninu í Hveragerði föstudaginn 20. júní  Hér má sjá úthlutun verkefnastyrkja Hér má sjá úthlutun stofn-og rekstrarstyrkja   ... Lesa meira
Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 21. júní

Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 21. júní

Hin árlega Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka verður að þessu sinni haldin laugardaginn 21. júní í 15. sinn. Að vanda verða margir dagskrárliðir og þar eiga allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi og eins og alltaf  vænta Eyrbekkingar þess að fá sem flesta íbúa Sveitarfélagsins Árborgar til þess að taka ... Lesa meira
Menningarráð Suðurlands úthlutar 26,6 milljónum til 110 verkefna

Menningarráð Suðurlands úthlutar 26,6 milljónum til 110 verkefna

Í janúar 2014 auglýsti Menningarráð Suðurlands eftir umsóknum um verkefnastyrki til eflingar menningarlífs á Suðurlandi. Alls bárust ráðinu 176 umsóknir og var sótt um u.þ.b. 80 milljónir kr. samtals. Á fundi ráðsins sem haldinn var 9. júní var samþykkt að veita 110 verkefnum styrki, samtals 26,6 milljónir kr. Úthlutunarhátíð verður ... Lesa meira
Vestmannaeyjar - númeralausir bílar fjarlægðir

Vestmannaeyjar – númeralausir bílar fjarlægðir

Vestamannaeyjabær hefur hafið vinnu við að merkja og hreinsa upp númerslausar bifreiðar af lóðum og götum sveitarfélagsins. Í hreinsunarvinnunni felst að skrifleg áminning verður límd á númerslausar bifreiðar, þar sem viðkomandi eigendum er gefinn viku frestur til að fjarlægja þær. Að þeim tíma liðnum mun Vaka ehf, fjarlægja viðkomandi bifreiðar ... Lesa meira
Skólastefna Ölfuss 2014-2018

Skólastefna Ölfuss 2014-2018

Unnið hefur verið að nýrri skólastefnu fyrir skóla í Ölfusi.  Stefnan hefur nú verið fullunnin og samþykkt og er hægt að skoða hana Skólastefna Ölfus 2014-2018 ... Lesa meira
Landnámsdagur í Skeiða-og Gnúp. 14. júní

Landnámsdagur í Skeiða-og Gnúp. 14. júní

Landnámsdagur verður haldinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 14. júní n.k. Dagskrá: Áshildarmýri 11:00-11:30 Landnámsdagur settur Opnunarerindi Kórsöngur, stjórnandi Þorbjörg Jóhannsdóttir Formleg afhending Áshildarmýrar frá Árnesingafélagi til Hérðasnefndar Árnesinga Opin hús 11:00-14:00 Opið fjós.  Kúabændur í Þrándarholti bjóða heim Opið loðdýrabú.  Minkabændur í Mön bjóða heim. Þjórsárdalsskógur, skógræktin býður skógarkaffi í ... Lesa meira
Fab Lab námskeið á Höfn

Fab Lab námskeið á Höfn

Haldið verður námskeið í Fab Lab hönnunarsmiðju dagana 9.-10.júní. Námskeiðið hefst kl. 16:00 og stendur til kl. 20:00 báða dagana. Tveir erlendir gestakennarar sjá um námskeiðið. Það sem kennt verður: - Notkun tölvufræsara. - Notkun laserskera. - Vinnsla þrívíddarteikninga fyrir viðarfræsara. - Kynning á Arduio iðntölvum. Skráning er hjá: Vilhjálmi ... Lesa meira
Upplýsingar til nýrra sveitarstjórna 2014

Upplýsingar til nýrra sveitarstjórna 2014

Lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman eftirfarandi ábendingar fyrir nýkjörnar sveitarstjórnir.Er þess vænst að ábendingunum verði dreift til allra aðalmanna sem kjörnir voru í sveitarstjórnarkosningum 31. maí 2014, og að þær muni gagnast sveitarstjórnum við að haga störfum sínum í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Nánar ... Lesa meira
Tour de Hvolsvöllur á laugardag

Tour de Hvolsvöllur á laugardag

Laugardaginn 28. júní fer fram hin árlega Tour de Hvolsvöllur, götuhjólreiðakeppni. Um er að ræða tvær vegalengdir, annars vegar Reykjavík/Hvolsvöllur 110 km og Selfoss/Hvolsvöllur 48 km.  Ræst er frá Reykjavík kl. 07:00 og frá Selfossi kl. 07:00 Nánar um Tour de Hvolsvöllur ... Lesa meira
Kótilettan 2014

Kótilettan 2014

Kótelettan BBQ Festival, bæjar-fjölskyldu- og tónlistarhátíð,  verður haldin í 5. sinn á Selfossi 13. – 15. júní n.k ... Lesa meira
Ráðgjafi SASS á Höfn

Ráðgjafi SASS á Höfn

Finnbogi Alfreðsson ráðgjafi SASS verður með viðveru í Nýheimum á Höfn miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. júní 2014 Tímapantanir á finnbogi@sudurland.is  eða í síma 898 6039 ... Lesa meira
Evrópsk kvikmyndahátíð á hjólum í Vík og á Flúðum

Evrópsk kvikmyndahátíð á hjólum í Vík og á Flúðum

Í júnímánuði efna Evrópustofa og Bíó Paradís til Evrópskrar kvikmyndahátíðar og verður boðið uppá brot af hinu besta í evrópskri kvikmyndagerð hringinn í kringum landið dagana 1. - 10. júní. Myndir sem sýndar verða eru, Antboy (talsett á íslensku) kl. 16:00, Málmhaus kl. 18:00 og Broken Circle Breakdown kl. 20:00 ... Lesa meira
Menningarstyrkir Flóahrepps 2014

Menningarstyrkir Flóahrepps 2014

Tvær umsóknir bárust um menningarstyrk Flóahrepps fyrir árið 2014 en frestur til að skila inn umsóknum rann út 15. apríl s.l. Búnaðarfélag Hraungerðishrepps fékk 700.000 kr. styrk vegna örnefnasöfnunar í fyrrum Hraungerðishreppi. Þórbergur Hrafn Ólafsson fékk 300.000 kr. styrk til ljósmyndunar á sögu bændasamfélagsins í Flóahreppi, 300.000 kr ... Lesa meira
Langflestir á móti sameiningu í Hrunamannahreppi

Langflestir á móti sameiningu í Hrunamannahreppi

Niðurstaða úr skoðanakönnun um sameiningu sveitarfélaga í Árnessýslu við Hrunamannahrepp,  sem fór fram samhliða sveitarstjórnarkosningunum 31. maí liggja nú fyrir. Já, við einhverskonar sameiningu sögðu 142 en nei sögðu 224. Auðir seðlar voru 19 og ógildir 7.  Já sögðu 97 við fyrsta valkosti en það var sameining uppsveita Árnessýslu (Hrunamannahreppur, ... Lesa meira
Í Skeiða-og Gnúpverjahreppi sögðu 50,5% já

Í Skeiða-og Gnúpverjahreppi sögðu 50,5% já

Samhliða nýliðnum sveitarstjórnarkosningum fór fram könnun meðal íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps um hug til sameiningar við önnur sveitarfélög. Knappur meirihluti íbúa eða 50,5 % völdu Já við einhverskonar sameiningu.  Nei sögðu  38,9 %. 10,58 % skiluðu auðu.  73,4 % þeirra sem eru á kjörskrá tóku þátt í kosningunni eða 85,9 ... Lesa meira
í Flóahreppi sögðu 165 já - 163 sögðu nei

í Flóahreppi sögðu 165 já – 163 sögðu nei

Niðurstöður úr skoðunarkönnuninni í Flóahreppi  vegna sameiningu sveitarfélagsins við önnur sveitarfélög í Árnessýslu samhliða  sveitarstjórnarkosningunum 31. maí var sú að já sögðu 165 en nei sögu 163. Alls tóku 340 manns þátt  eða 75,1 % kjósenda. Af þeim sem sögðu já vilja 55 sjá sameiningu Flóahrepps við öll önnur sveitarfélög ... Lesa meira
Vilja skoða sameiningu

Vilja skoða sameiningu

Mikill meirihluti þeirra sem tók þátt í skoðanakönnun í Árborg um sameiningu sveitarfélaga vill að Árborg sameinist öðrum sveitarfélögum. Flestir vilja sjá alla Árnessýslu sameinaða. Samhliða sveitarstjórnarkosningum var spurt var um vilja íbúa til að kanna möguleika á sameiningu Sveitarfélagsins Árborgar við önnur sveitarfélög.  Alls  2.870  tóku þátt í könnuninni ... Lesa meira