20 umsækjendur um stöðu sveitarstjóra í Ásahreppi
20 umsækjendur er um stöðu sveitarstjóra Ásahrepps en um er að ræða 70% starfsfhlutfall. Ásahreppur er sveitarfélag vestast í Rangárvallasýslu, sem varð til 11. júlí 1892 þegar Holtamannahreppi var skipt í tvennt, í Holtahrepp hið efra og Ásahrepp hið neðra. Ásahreppi sjálfum var skipt í tvennt í janúar 1936 og ... Lesa meira
Ný stjórn SASS
Ný stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) var kosin á aukaaðalfundi samtakanna á Hótel Selfossi miðvikudaginn 2. júlí. Hana skipa Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps sem var endurkjörinn formaður og Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps er nýr varaformaður samtakanna. Aðrir í nýju stjórninni eru; Páll Marvin Jónsson Vestmannaeyjum, Sandra Dís Hafþórsdóttir ... Lesa meira
Ársreikningar sveitarfélaga 2013
Almennt má segja að jákvæð þróun síðustu ára í fjármálum sveitarfélaga hafi haldið áfram á árinu 2013. Afkoma sveitarfélaga batnar í heildina tekið og fjárhagslegur styrkur þeirra fer vaxandi. Þetta kemur m.a. fram í 5. tbl. Fréttabréfs hag- og upplýsingasviðs sambandsins sem nú er komið út. Að þessu sinni er ... Lesa meira
Talnarýnir -Tekjuþróun sveitarfélaga á Suðurlandi
Útsvarstekjur á hvern íbúa sveitarfélaganna á Suðurlandi sveiflast mjög mikið á milli áranna 2002-2012, en eru mismiklar eftir sveitarfélögum. Vestmannaeyjar, Hornafjörður og Sveitarfélagið Ölfus, standa upp úr allt tímabilið, sérstaklega þó Vestmannaeyjar og Hornafjörður, sem rekja má til góðæris í uppsjávarafla og vinnslu. Þessar sveiflur endurspegla þann veruleika sem stjórnendur ... Lesa meira
„Blóm í bæ“ um næstu helgi
"Blóm í bæ" - stórsýning græna geirans í Hveragerði um helgina Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ verður haldin í fimmta sinn í Hveragerði dagana 27. til 30. júní eftir mikla velgengni síðastliðinna ára. Tugir þúsunda hafa sótt hátíðina heim, veðrið hefur ávallt leikið við Hvergerðinga og gestir hátíðarinnar, sem ... Lesa meira
Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálfaverkfræði, staða og framtíð
Komið hefur fram hugmynd í Háskóla Íslands um að flytja starfsemi Rannsóknarmiðstöðvar í jarðskjálftaverkfræði til Reykjavíkur. Á stjórnarfundi SASS sem haldinn var í Vestmannaeyjum 4. Júní sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt: ,,Stjórn SASS skorar á innaríkisráðuneytið og Alþingi að hækka framlag til Rannsóknarmiðstöðvarinnar á næstu fjárlögum til samræmis við upphafleg ... Lesa meira
Nýr upplýsingadálkur
Við hjá SASS ætlum að byrja með nýjan dálk hér til vinstri á síðunni, "Talnarýnir" þar munum við setja inn ýmsar tölulegar upplýsingar sem tengjast Suðurlandi, m.a. fylgjast með þróun ýmissa málaflokka milli ára ... Lesa meira
Dagskrá Humarhátíðar á Höfn 26. – 29. júní 2014
Humarhátíðin á Höfn í Hornafirði fer fram um næstu helgi, dagana 26. -29. júní. Dagskráin er viðamikil og má sjá hana í heild sinni hér að neðan. Hér er dagskrá Humarhátíðarinnar ... Lesa meira
Grunnskólum á Suðurlandi fækkar
Grunnskólum á Suðurlandi hefur fækkað um 16 á ellefu árum skv. Hagstofu Íslands. Samfelld fækkun nemenda hefur verið frá árinu 2003, þá voru nemendur 4.137. Árið 2012 var nemendafjöldi kominn í 3.599. Næstmesta fækkun nemenda var á milli áranna 2008 og 2009, 112 sem er 2,85% og mesta fækkun á ... Lesa meira
Bæjarráð á Hornafirði eingöngu skipað konum
Á bæjarstjórnarfundi í Sveitarfélaginu Hornafirði 18. júní var Björn Ingi Jónsson kosin nýr bæjarstjóri sveitarfélagsins. Björn Ingi er oddviti Sjálfstæðisflokksins sem er í meirihlutasamstarfi við 3. Framboðið, hann hefur seti í bæjarstjórn Hornafjarðar í 8 ár. Á fundinum var kosið í nefndir og ráð í bæjarráði sem er skipað þrem ... Lesa meira
Úthlutun styrkja Menningarráðs Suðurlands 2014
Úthlutun verkefnastyrkja til eflingar menningarlífs á Suðurlandi fer fram í Listasafninu í Hveragerði föstudaginn 20. júní Hér má sjá úthlutun verkefnastyrkja Hér má sjá úthlutun stofn-og rekstrarstyrkja ... Lesa meira
Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka 21. júní
Hin árlega Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka verður að þessu sinni haldin laugardaginn 21. júní í 15. sinn. Að vanda verða margir dagskrárliðir og þar eiga allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi og eins og alltaf vænta Eyrbekkingar þess að fá sem flesta íbúa Sveitarfélagsins Árborgar til þess að taka ... Lesa meira
Menningarráð Suðurlands úthlutar 26,6 milljónum til 110 verkefna
Í janúar 2014 auglýsti Menningarráð Suðurlands eftir umsóknum um verkefnastyrki til eflingar menningarlífs á Suðurlandi. Alls bárust ráðinu 176 umsóknir og var sótt um u.þ.b. 80 milljónir kr. samtals. Á fundi ráðsins sem haldinn var 9. júní var samþykkt að veita 110 verkefnum styrki, samtals 26,6 milljónir kr. Úthlutunarhátíð verður ... Lesa meira
Vestmannaeyjar – númeralausir bílar fjarlægðir
Vestamannaeyjabær hefur hafið vinnu við að merkja og hreinsa upp númerslausar bifreiðar af lóðum og götum sveitarfélagsins. Í hreinsunarvinnunni felst að skrifleg áminning verður límd á númerslausar bifreiðar, þar sem viðkomandi eigendum er gefinn viku frestur til að fjarlægja þær. Að þeim tíma liðnum mun Vaka ehf, fjarlægja viðkomandi bifreiðar ... Lesa meira
Skólastefna Ölfuss 2014-2018
Unnið hefur verið að nýrri skólastefnu fyrir skóla í Ölfusi. Stefnan hefur nú verið fullunnin og samþykkt og er hægt að skoða hana Skólastefna Ölfus 2014-2018 ... Lesa meira
Landnámsdagur í Skeiða-og Gnúp. 14. júní
Landnámsdagur verður haldinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 14. júní n.k. Dagskrá: Áshildarmýri 11:00-11:30 Landnámsdagur settur Opnunarerindi Kórsöngur, stjórnandi Þorbjörg Jóhannsdóttir Formleg afhending Áshildarmýrar frá Árnesingafélagi til Hérðasnefndar Árnesinga Opin hús 11:00-14:00 Opið fjós. Kúabændur í Þrándarholti bjóða heim Opið loðdýrabú. Minkabændur í Mön bjóða heim. Þjórsárdalsskógur, skógræktin býður skógarkaffi í ... Lesa meira
Fab Lab námskeið á Höfn
Haldið verður námskeið í Fab Lab hönnunarsmiðju dagana 9.-10.júní. Námskeiðið hefst kl. 16:00 og stendur til kl. 20:00 báða dagana. Tveir erlendir gestakennarar sjá um námskeiðið. Það sem kennt verður: - Notkun tölvufræsara. - Notkun laserskera. - Vinnsla þrívíddarteikninga fyrir viðarfræsara. - Kynning á Arduio iðntölvum. Skráning er hjá: Vilhjálmi ... Lesa meira
Upplýsingar til nýrra sveitarstjórna 2014
Lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman eftirfarandi ábendingar fyrir nýkjörnar sveitarstjórnir.Er þess vænst að ábendingunum verði dreift til allra aðalmanna sem kjörnir voru í sveitarstjórnarkosningum 31. maí 2014, og að þær muni gagnast sveitarstjórnum við að haga störfum sínum í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Nánar ... Lesa meira
Tour de Hvolsvöllur á laugardag
Laugardaginn 28. júní fer fram hin árlega Tour de Hvolsvöllur, götuhjólreiðakeppni. Um er að ræða tvær vegalengdir, annars vegar Reykjavík/Hvolsvöllur 110 km og Selfoss/Hvolsvöllur 48 km. Ræst er frá Reykjavík kl. 07:00 og frá Selfossi kl. 07:00 Nánar um Tour de Hvolsvöllur ... Lesa meira
Kótilettan 2014
Kótelettan BBQ Festival, bæjar-fjölskyldu- og tónlistarhátíð, verður haldin í 5. sinn á Selfossi 13. – 15. júní n.k ... Lesa meira