630. fundur stjórnar SASS
Haldinn á Teams föstudaginn 7. nóvember 2025, kl. 12:30
Þátttakendur
Anton Kári Halldórsson formaður sem stýrði fundi, Sandra Sigurðardóttir varaformaður, Arnar Freyr Ólafsson, Árni Eiríksson, Brynhildur Jónsdóttir, Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, Jóhannes Gissurarson, Gauti Árnason og Helga Jóhanna Harðardóttir. Fundinn situr einnig Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri sem ritar fundargerð.
Formaður býður fundarmenn velkomna á fundinn.
- Niðurstöður ársþings SASS 2025
a. Ályktanir, verkefni til stjórnar og tillögur að áhersluverkefnum. Farið yfir samantekt niðurstaðna þingsins og rætt hvernig farið verður með niðurstöður. Samantekið skjal verður sent á sveitafélög og ráðuneyti og fylgt eftir með fundum, greinum og við fjölmiðla. - Innra skipulag samtakanna
a. Tilboð frá ráðgjöfum og upplegg verkefnis kynnt. Formanni og framkvæmdastjóra falið að klára málið. - Næstu fundir SASS
a. Stjórn leggur til að stað-aðalfundur sem haldinn verður eftir næstu sveitastjórnarkosningar verði þann 25. júní 2026. Jafnframt leggur stjórn það til að stað-aðalfundur sem haldinn er fjórða hvert ár, rúlli milli sveitarfélaga með sérstaka áherslu á þau sveitarfélög sem ekki sjá sér fært að halda haustfund vegna takmarkaðs gistirýmis.
b. Stjórn leggur til að næsti hausfundur verði haldinn á miðsvæðinu dagana 29. – 30. október 2026. Nánari staðsetning verður gefin út þegar búið er að tryggja gistirými. - Önnur mál
a. Mál til umsagnar: tillaga að verklagi. Stjórn leggur til að framkvæmdastjóri og starfsfólk SASS vakti umsagnir og leggi fram við stjórn ef um brýn málefni er að ræða.
b. Fulltrúi SASS í starfrænu ráði Sambandsins. Stjórn leggur til að Helga Jóhanna Harðardóttir sitji í ráðinu fyrir hönd SASS fram að næstu kosningum. Framkvæmdastjóra falið að tilkynna það til ráðsins svo hægt sé að senda skipunarbréf. - Lagt fram til kynningar
a. Nýr starfsmaður, verkefnastjóri miðlunar hefur verið ráðinn. Sá er Stefán Friðrik Friðriksson og mun hann hefja störf fljótlega.
b. Uppbyggingarsjóði Suðurlands bárust 132 umsóknir í haust úthlutun sjóðsins. Fagráð menningar og samfélags, og fagráð atvinnu- og nýsköpunar fara yfir umsóknir um miðjan nóvember og stjórn mun staðfesta niðurstöður á fundi sínum 5. desember n.k. Í framhaldi verður umsækjendum tilkynnt um niðurstöður.
c. Fundargerðir annarra landshlutasamtaka og tengdra aðila lagðar fram til kynningar.