BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv5.2.3//EN
X-WR-CALNAME:WordPress
X-ORIGINAL-URL:https://www.sass.is/
BEGIN:VEVENT
UID:MEC-4a381f06f401489920c2ed5650ac4915@sass.is
DTSTART:20200504T160000Z
DTEND:20200504T180000Z
DTSTAMP:20200420T084500Z
CREATED:20200420
LAST-MODIFIED:20200420
SUMMARY:Tónlistarsjóður
DESCRIPTION:Fyrir hverja?
Tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.
Til hvers?
Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.
Umsóknarfrestur
Maí og nóvember ár hvert, næst 4. maí 2020, kl. 16:00.

Umsóknarkerfi opnar að jafnaði sex vikum fyrir umsóknarfrest.
Hvert er markmiðið?
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess skv. lögum nr. 76/2004 og reglum um Tónlistarsjóðs nr. 125/2005 .
Hverjir geta sótt um?
Aðstandendur tónlistarverkefna geta sótt um styrk.
Hvað er styrkt?
Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til kynningar og markaðsetningar á tónlist og tónlistarfólki. Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn. Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.
Sjá nánar hvað er styrkt og hvað ekki? í leiðbeiningar vegna umsókna.
 
Skilyrði úthlutunar
Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (sjá leiðbeiningar) fyrir lok umsóknarfrests. Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn.
Hafi umsækjandi þegið styrk úr Tónlistarsjóði þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn komi til greina, það sama á við um verk í vinnslu þá skal umsækjandi skila inn greinargerð um stöðu verksins. 
Hlutverk Rannís
Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, er að sjá um umsýslu Tónlistarsjóðs fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.
URL:https://www.sass.is/vidburdardagatal/tonlistarsjodur/
ORGANIZER;CN=Rannís / Nýsköpunarsjóður námsmanna:MAILTO:rannis@rannis.is
CATEGORIES:Fjármögnun verkefna,Styrktarsjóðir
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.sass.is/wp-content/uploads/2020/04/rannís.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR