BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv5.2.3//EN
X-WR-CALNAME:WordPress
X-ORIGINAL-URL:https://www.sass.is/
BEGIN:VEVENT
UID:MEC-819a6134d0a0109e4cf89b3b46d7aaf5@sass.is
DTSTART:20200427T080000Z
DTEND:20200427T180000Z
DTSTAMP:20200408T101100Z
CREATED:20200408
LAST-MODIFIED:20200420
SUMMARY:Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðherra
DESCRIPTION:Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðherra
Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið veitir tvisvar á ári styrki til verkefna og viðburða á málefnasviði ráðherra. Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga. Styrkjum er úthlutað samkvæmt reglum sem finna má hér að neðan.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki í febrúar og september árlega.

Styrkveitingar vorið 2020
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 
Úthlutunarreglur fyrir hvorn ráðherra fyrir sig:

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Ekki eru veittir styrkir til einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.
Skv. úthlutunarreglum munu starfshópar skipaðir af ráðherrum meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutum má finna í úthlutunarreglum.
Umsóknum skal skila rafrænt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins, www.minarsidur.stjr.is, í síðasta lagi 27. apríl 2020 
Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Eftirtalin gögn skulu fylgja með umsóknum:

Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur.
Upplýsingar um aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru.
Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið.
Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra.
Lýsing á því hvernig árangur verkefnisins verði metinn.
Tíma- og verkáætlun.
Fjárhagsáætlun, þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn. 

Nánari upplýsingar um styrkina veitir Ása María H. Guðmundsdóttir í síma 545-9700 eða í gegnum postur@anr.is
URL:https://www.sass.is/vidburdardagatal/styrkir-til-verkefna-og-vidburda-a-malefnasvidum-radherra/
ORGANIZER;CN=Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið:MAILTO:postur@anr.is
CATEGORIES:Annað,Fjármögnun verkefna,Markaðsmál,Menning og viðburðir,Rekstrarráðgjöf,Stofnun og fjármögnun fyrirtækja,Styrktarsjóðir,Uppbyggingarsjóður
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://www.sass.is/wp-content/uploads/2020/04/skjaldarmerkid2.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR