fbpx

Næsta sýning á leikritinu Unglingnum verður sunnudaginn 16. mars, kl. 17:00 í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi

Unglingurinn er frábært nýtt leikverk  sem er samið og leikið af unglingum. Sýningin hefur slegið í gegn og Menningarþátturinn Djöflaeyjan kaushana m.a sem eina af áhugaverðustu sýningum ársins og sagðist ekki hafa skemmt sér svona vel í langan tíma.

UNGLINGURINN er drepfyndið leikrit en á sama tíma mjög einlægt og tekur á öllum helstu málum sem brenna á unglingum í dag. Þó að verkið sé um unglinga er það ekki síður skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna.

Þetta er tilvalin samverustund þar sem hláturtaugarnar eru kitlaðar og foreldrar fá smá fræðslu í unglingamálum!

Og ekki spillir verðið því að Gaflaraleikhúsið og Menntalest Suðurlands (SASS) bjóða miðann á  aðeins 1.750 kr ef að keypt er viku fyrir sýningu eða fyrr. (almennt miðaverð er 2.500 kr)