fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl.  Veitt eru peningaverðlaun, auk þess fylgir verðlaununum formleg viðurkenning.

Veitt menntaverðlaun:

2015 Sérdeild Suðurlands
2014 Njálurefillinn
2013 Leikskólinn Heklukot á Hellu
2012 Laugalandsskóli í Holtum
2011 Grunnskólinn í Þorlákshöfn
2010 Fjölbrautaskóli Suðurlands
2009 Flúðaskóli
2008 Fræðslunet Suðurlands