fbpx

Föstudaginn 28. mars k. 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands þegar ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mæta við Litlu Kaffistofuna og klippa á borða og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, sem standa að átakinu bjóða frítt í Strætó alla þessa daga frá Reykjavík um allt Suðurland.  Tæplega 200 viðburðir eru skráðir til leiks á leyndardómunum og fór þátttakan langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda. Allar upplýsingar um viðburði er að finna hér og á www.sudurland.is

Góða skemmtun á Leyndardómum Suðurlands 2014.

P 

Viðburði í tímaröð má sjá hér

Nánari upplýsingar um viðburði má sjá hér