fbpx

Markmið

  • Að mennta fólk til að sinna svæðisbundinni leiðsögn á Suðurlandi.
  • Að undirbúa fólk undir að öðlast full réttindi sem leiðsögumenn (1. hluti leiðsögunáms).
  • Ávinningur er: starfsréttindi í svæðisbundinni leiðsögn á Suðurlandi.

Verkefnislýsing

Svæðisbundin leiðsögn á Suðurlandi sem kennd er í samvinnu við Menntaskólann í Kópavogi/leiðsöguskólann. Námið er 23 einingar, 264 kennslustundir og veitir réttindi til svæðisbundinnar leiðsagnar á Suðurlandi. 
Námið er kennt veturinn 2016-2017.

Tengsl við sóknaráætlun

Málefnasvið: Menntun, mannauður og lýðfræðileg þróun svæða. 

  • Skapa jákvæða ímynd af Suðurlandi sem byggir á gæðum og hreinleika.
  • Hækka menntunarstig á Suðurlandi með eflingu framboðs og aðgengis að menntun í heimabyggð.
  • Auka fjölbreytni í atvinnulífi, mannlífi, menningu og menntun

Lokaafurð

Yfir 20 leiðsögumenn með svæðisbundin leiðsöguréttindi á Suðurlandi.

Verkefnastjóri
Sólveig R. Kristinsdóttir       
Verkefnastjórn
Sólveig R. Kristinsdóttir, Ingunn Jónsdóttir
Framkvæmdaraðili
Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi
Samstarfsaðili
Menntaskólinn í Kópavogi og Leiðsöguskólinn
Yfir 20 leiðsögumenn með svæðisbundin leiðsöguréttindi á Suðurlandi.
Heildarkostnaður
6.500.000 kr.
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
1.500.000 kr.
Ár
2016
Tímarammi
Verkefnið verður unnið á árunum 2016-2017