fbpx

Fyrir frumkvöðlakonur

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2017 lausa til umsóknar.

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, vöruþróunar, hönnunar og efniskostnaðar.
  • Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 600.000.

Umsóknarfrestur er frá 20.janúar til og með 20.febrúar og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is
Athugið að búið er að taka í notkun nýtt umsóknarkerfi og búa þarf til aðgang að síðunni til að geta hafið umsóknarvinnuna.

Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.

asdis.gudmundsdottir@vmst.is 
https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna
https://twitter.com/atvinnumalkvenn



Klikkið á myndina til að sjá auglýsingu stærri