fbpx

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða tii 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Pians-DMP) um landið.

Á fundunum munu fulltrúar Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem skoski ráðgjafinn Tom Buncie mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

Fundirnir verða sem hér segir:

  • Patreksfjörður, mánudaginn 19. september kl. 09:00
  • Suðureyri, mánudaginn 19. september kl. 14:00
  • Hólmavík, þriðjudaginn 20. september kl. 09:00
  • Borgarnes, þriðjudaginn 20. september kl. 14:00
  • Höfn í Hornafirði, miðvikudaginn 21. september kl. 10:15
  • Egilsstaðir, miðvikudaginn 21. september kl. 16:00
  • Grundarfjörður, fimmtudaginn 22. september kl. 9:00
  • Reykjavík, fimmtudaginn 22. september kl. 15:00
  • Húsavík, mánudaginn 10. október kl. 09:30
  • Blönduós, mánudaginn 10. október kl. 16:00
  • Akureyri, þriðjudaginn 11. október kl. 10:00
  • Selfoss, miðvikudaginn 12. október kl. 09:00
  • Vík í Mýrdal, miðvikudaginn 12. október kl. 15:00
  • Reykjanes, fimmtudaginn 13. október kl. 09:30

stjornstod-ferdamalaferdamalastofa