fbpx
29. ágúst 2016

Skipulagsdagurinn 2016 verður haldinn fimmtudaginn 15. september nk. Um er að ræða heils dags ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík sem Skipulagsstofnun stendur að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Hún er ætluð öllum sem koma að gerð skipulags, sveitarstjórnarmönnum, skipulagsfulltrúum sveitarfélaga, skipulagsráðgjöfum og hönnuðum. Að þessu sinni verður áhersla Skipulagsdagsins á gæði byggðar og umhverfis. Horft verður til þess hvernig beita má skipulagi til að tryggja gæði í byggðu umhverfi almennt og sérstaklega við uppbyggingu ferðamannastaða.