fbpx

SASS auglýsir eftir umsóknum um styrki til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi. Til úthlutunar eru 45 milljónir króna.

Umsóknarfrestur er til og með 22. september

Eftirfarandi forsendur og áherslur verða lagðar til grundvallar við mat á umsóknum 2014:
• Vöruþróun og nýsköpun til dæmis í matvælaiðnaði og ferðaþjónustu
• Vöruþróun og markaðssetning ferðaþjónustu utan háannar
• Markaðssókn fyrir vörur og þjónustu á nýja markaði
• Fjármögnun verkefnastjórnunar í stærri rannsóknar- og þróunarverkefnum á Suðurlandi
• Klasar og uppbygging þeirra
• Tímabundin ráðning starfsmanna með sérþekkingu til að hagnýta möguleika fyrirtækis til vaxtar

Ofangreindar áherslur eru ekki skilyrði fyrir styrkveitingu.

Verkefni þar sem fyrirtæki og stofnanir vinna saman að rannsóknum, þróun og fræðslu njóta forgangs.

Mótframlag verkefnis þarf að vera að lágmarki 50% en mótframlag getur verið í formi vinnuframlags. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga. Þegar áfallinn kostnaður er ekki styrkhæfur. Horft er til þess að verkefni leiði til varanlegs ábata fyrir samfélagið og séu atvinnuskapandi til lengri tíma.

Stuðningur SASS við styrkþega, frumkvöðla og einstök verkefni, getur einnig falið í sér tímabundna vinnuaðstöðu hjá SASS og/eða beina aðstoð ráðgjafa við verkefnið.

Styrkveitingar til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar eru fjármagnaðar með samningi um framlög til byggðaþróunar á Suðurlandi árið 2014 og með fjármagni frá SASS.

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og þiggja aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sass@sudurland.is. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn sudurland.is.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustuvettvangur um hagsmunamál sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.

Hér má nálgast umsóknareyðublað

sass logo (2)

SASS – Selfossi Sass – Hvolsvelli SASS – Vestmannaeyjum SASS – Höfn
Austurvegi 56 Ormsvöllum 1 Þekkingarsetri VE Nýheimum
s. 480 8200 s. 480 8200 s. 480 8200 s. 4808200