fbpx

Í tilefni 70 ára afmælis Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur nýr og endurbættur upplýsinga-og samskiptavefur verið tekinn í notkun www.samband.is Vefurinn hefur verið uppfærður miðað við þá þróun sem hefur orðið í allri samskiptatækni á síðustu árum og er nú hægt að skoða vefinn m.a. í snjallsímum og spjaldtölvum. Vefurinn aðlagar sig að stærð skjás á tæki notanda. Einnig var opnaður aðgangur almennings að tímaritinu Sveitarstjórnarmálum á vefnum www.timarit.is Allir árgangar Sveitarstjórnarmála frá 1941 til 2013 hafa veirð myndaðir og birtir á vefnum.