fbpx

Umsóknarfrestur er til 17. september 2018, kl. 16:00.

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sprota, Vexti/Spretti og Markaðsstyrk.

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
  • Markaðsstyrkur er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári. Styrkinn er hægt að sækja um vegna sérstaks markaðsátaks en einnig til uppbyggingar innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.

Umsóknarfrestur er til 17. september 2018, kl. 16:00.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar á síðu Tækniþróunarsjóðs.