fbpx

Ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi sem ber yfirskriftina Ungt fólk á Suðurlandi horfir til framtíðar. Ráðstefnan verðu haldin á Hótel Selfossi 30. – 31. janúar.

Fyrri dagurinn er vinnudagur unga fólksins en ráðstefnan sjálf fyrir unga sem eldri fer fram þann 31. janúar og hefst kl. 09:45 með setningu Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þann dag koma saman fulltrúar sveitarstjórna á Suðurlandi, embættismenn og þingmennum og eiga samtal við unga fólkið um framtíðarsýn landshlutans. Meðal atriða sem m.a. verður horft til eru:

– skipulagsmál
– hvaða tækifæri leynast á svæðinu
– stuðningur við ungmennaráða á Suðurlandi í að vinna að hagsmunum þeirra
– hverjir eru hagsmunir ungs fólks í landshlutanum
– kynning á starfsemi ungmennaráða og fyrir hvað standa þau
– stuðningur við sveitarfélög á Suðurlandi sem ekki hafa stofnað ungmennaráð 
– styrkja og standa vörð um ungmennaráð á Suðurlandi 
– valdefling ungmenna
– efla og styrkja samstarf ungmennaráða í landshlutanum

Ungmennaráð Árborgar, í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), sem stendur fyrir ráðstefnunni. Ungmennráðið fékk styrk frá Erasmus+ sem er styrkjaáætlun ESB fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál til að halda ráðstefnuna.

Skráning á ráðstefnuna berist á vefpóstinn ungmennarad@arborg.is eigi síðar en föstudaginn 25. janúar 2019.